24. september, 2008
Það er alveg rétt sem Jóhannes Kjarval segir í 24 stundum í morgun, ýmsir skemmtistaðir hafa þrátt fyrir fögur loforð lokað alla daga vikunnar nema á föstudags og laugardagskvöldum. Raunar átta ég mig ekki alveg á því viðskiptamódeli að vera með stað á besta stað í bænum en gera í raun bara út á 5 tíma eftir miðnætti á föstudögum og laugardögum. Slíkir klúbbar eru auðvitað fínir og eru til í öllum borgum, en ég hef ekki orðið var við að þeir séu á jafn mikilvægum stöðum fyrir borgarlífið og sumir okkar staða eru. En auðvitað er ekki við vertana á stöðunum að sakast. Þeir starfa innan þess ramma sem borgin setur þeim og auðvitað vilja þeir vera í glæsilegu húsnæði. Ég vildi bara óska að þessir duglegu menn sem reka þessa staði myndu kjósa að hafa þá opna á daginn líka, þannig að fólk gæti fengið sér hádegismat eða kaffibolla og skapað líf á svæðinu. Einn af eftirlætissonum þjóðarinnar Björgólfur Thor rak Tunglið með glæsibrag á sínum tíma, en sagði löngu síðar að þótt það hefði gengið ágætlega væri rekstur svona staða eitthvað það skrautlegasta sem hann hefði tekið þátt í.
Annað dæmi um líflausan stað er héraðsdómur. Mér skilst að staðsetningin við Lækjartorg henti dómnum ekki einu sinni neitt sérstaklega vel, og það er alveg ljóst að hún hentar borgarlífinu ekki. Húsið stendur þunglyndislegt og steindautt eftir klukkan 4 alla daga og allar helgar. Og það er svo sem ekkert að springa úr fjöri heldur þegar starfsemin er á fullu. Það hlýtur að vera hægt að finna honum betri stað og koma lifandi starfsemi í húsið. Innan dómsmálaráðuneytisins mun vera vilji til þess að flytja dóminn annað. Vonandi gengur það eftir.
23. september, 2008
Leiðari The Times tók hraustlega undir með borgarstjóranum í Lundúnum Boris Johnson um að hefja ætti undirbúning að nýjum flugvelli á eyju í Thames, vestan við höfuðborgina. Ekki veit ég hvort þessi hugmynd verður nokkurn tíma að veruleika, en rökin með og á móti hljóma kunnuglega fyrir alla sem fylgst hafa með flugvallarumræðunni á Íslandi.
Byggð [...]
19. september, 2008
Borgarfulltrúar fá margar athyglisverðar hugmyndir frá áhugasömum borgarbúum. Í viðtölum mínum í vikunni fékk ég til dæmis nokkrar og ein gömul hugmynd var endurvakin. Mér hefur alltaf fundist hún nokkuð góð enda hafa margir velt þessu fyrir sér. Hugmyndin er þessi:
Af hverju eru Útlagar Einars Jónssonar staðsettir á gróðursælum og yndislegum stað við suðurenda gamla [...]
18. september, 2008
Samgönguráðherra sagði í Kastljósinu að hábrú yfir Elliðaárvoginn væri nú aftur komin inn í myndina. Ástæðu þessa sagði hann vera að hún hefði lækkað nokkuð í verði.
Sundabrautin hefur verið deilumál í borginni í mörg ár. Íbúar beggja vegna vogsins, í Grafarvogi og Vogahverfi, hafa verið mjög áhyggjufullir yfir því hvaða áhrif hugsanlegar brýr yfir voginn [...]
15. september, 2008
Flestir hafa einhverntíma kvartað undan því að fá ekki bílastæði í miðbænum. Upplifun fólks er sú að það vanti fleiri stæði og kaupmenn hafa tekið undir þetta. Meðal annars vegna þessa stendur til að opna risastórt bílastæðahús undir Tónlistar- og ráðstefnuhúsinu, þar sem meira en 1600 bílar munu geta lagt.
Staðreyndin er hinsvegar sú að bílastæði [...]
12. september, 2008
Spurningin um flugvöllinn snýst ekki bara um innanlandsflug og smekk manna fyrir byggð í Vatnsmýri. Hún snýst ekkert síður um önnur hverfi Reykjavíkur. Reykvíkingum mun fjölga um 30 þúsund manns á næstu 50 árum og við verðum að fara að ákveða hvar þetta fólk á að búa. Ef flugvallarsinnar fengju sínu framgengt og lítil sem [...]
10. september, 2008
Fyrirsögnin á baksíðu The Scotsman í dag segir mikla sögu um stemninguna fyrir skoska landsliðinu eftir tapið gegn Makedóníu um helgina. Skilaboðin eru einföld: Ef þið vinnið Íslendingana er ykkur fyrirgefið, ef þið tapið, þá er þetta búið.
Fögrum orðum er farið um íslenska liðið og Ólaf Jóhannesson þjálfara í 4 blaðsíðna umfjöllun The Scotsman. Hvarvetna [...]
8. september, 2008
Vinur minn hefur lengi haldið þeirri kenningu á lofti, að hvað sem líður öllum greiningum á forsetaframbjóðendunum í Bandaríkjunum, málefnaáherslum eða hverju sem er, þá er ósköp einfalt mannlegt atriði sem ræður úrslitum: Leiðinlegi frambjóðandinn tapar.
Það var til dæmis enginn vafi í hugum Bandaríkjamanna að John Kerry væri leiðinlegri en Bush og það er mynd [...]
5. september, 2008
Ásamt því að fella furðutillögu um nýja kosningu um Vatnsmýrina á borgarstjórnarfundi, hef ég unnið hörðum höndum að nokkrum mikilvægum málum sem meirihlutinn í borginni fól mér að sjá um. Aðallega eru þetta mál sem ég hef verið að vinna í lengi og nýr formaður umhverfis- og samgönguráðs Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir fékk mig til að halda [...]
3. september, 2008
Á borgarstjórnarfundinum í gær lagði Ólafur F. Magnússon fram tillögu um að það yrði kosið um framtíðarstaðsetningu flugvallarins, aftur. Tillagan fékk engar undirtektir og ég greiddi atkvæði með frávísunartillögu borgarstjóra, eins og 13 aðrir borgarfulltrúar. Ólafur var sem sagt einn fylgjandi tillögunni sinni.
Það væri gott ef Ólafur F. Magnússon og aðrir þeir sem eru á [...]