Bylting fyrir byrjendur
Það er í senn sorglegt og hlægilegt að sjá ungliðahreyfingar Vinstri grænna og Samfylkingarinnar lýsa því að bylting hafi átt sér stað á Íslandi. Mótmæli eru ekki það sama og bylting. Jafnvel þótt ráðist sé á lögreglumenn, leiðtogi mótmælanna kalli krabbamein Geirs Haarde reykbombu og Útrásarpenni Baugs númer 1 ráðist á bíl forsætisráherra. Slíkt breytir mótmælum ekki í byltingu.
Í kjölfar alvarlegrar efnahagskreppu hefur almenningur orðið mjög óánægður með ríkisstjórnina og raunar alþingi allt. Fjöldi manns hefur mótmælt ástandinu, þótt saga undanfarinna áratuga geymi ótal mótmæli, og fögnuði, sem hafa dregið til sín miklu fleira fólk. Án þess að minnst hafi verið á byltingu.
En óánægjan hefur verið mikil. En hversu mikil? Þótt Vinstri Grænir séu núna með mikið fylgi, flokkast það varla sem bylting. Þeir hafa áður verið með svipað fylgi, 26% fyrir tveimur árum, en hrapað síðan þegar nálgast kosningar enda geðjast venjulegu fólki ekki að hugmyndum þeirra um stjórn landsins. Það er því ákaflega lýðræðislegt, ekki satt, að þeir komist núna til valda án kosninga?
Staðreyndin er sú að sé almenningur spurður, kemur í ljós að engin bylting hefur átt sér stað í þjóðfélaginu. Megn óánægja var með þá ríkisstjórn sem sat, og fólk lýsti þeim skoðunum sínum. Það sem var óvenjulegt núna, var að fámennur hópur mótmælenda gekk óvenju hart fram og náði, með ofbeldi og spellvirkjum, að fanga athygli fjölmiðla og samfylkingarfólks. Samfylkingin fór við þetta á taugum og sleit ríkisstjórnarsamstarfinu.
Fyrir vikið erum við í þeirri stöðu að á Íslandi er ekkert starfandi Fjármálaeftirlit, yfirstjórn Seðlabankans les það í fjölmiðlum að hún verði rekin eins fljótt og auðið er, og tveir flokkar eru að reyna að koma sér saman um það hvort það eigi að hætta við lánið frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og hvort það eigi að sækja um aðild að ESB. Þetta eru auðvitað smámál og engin ástæða til að mótmæla þessu ástandi, eins og sást fyrir framan Alþingishúsið í gærkvöldi og í dag. Mótmælendur virðast alveg sáttir við að dögum saman gerist ekkert nema það að þeirra fólk skipti á milli sín völdunum.
Staðreyndin er sú að þeir mótmælendur sem hæst höfðu, höfðu engan áhuga á lýðræði eða skoðunum þjóðarinnar. Sú stjórn sem nú er að fara frá völdum hafði stuðning 25% þjóðarinnar til að starfa fram að kosningum, skv. Fréttablaðskönnun á laugardaginn. Sannarlega lítill stuðningur og bagalegt að hafa stjórn með svo lítið fylgi. En af því Samfylkingin er svo lýðræðissinnaður flokkur, að ekki sé minnst á Vinstri græna, tekur nú við ríkisstjórn með stuðning 18.2% þjóðarinnar, samkvæmt sömu könnun. Algjör bylting.