28. febrúar, 2009
Jóhanna Sigurðardóttir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Össur Skarphéðinsson
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
Helgi Hjörvar
Mörður Árnason
Jón Baldvin
Svona vill fólkið hér að ofan að framboðslisti Samfylkingarinnar í Reykjavík líti út (Ásta, Helgi og Mörður vilja eftir atvikum hafa sætaskipti, og Jón vill líkast til skipta á sér og Ingibjörgu). Þau telja öll að það sé rík eftirspurn eftir þeim og að krafan um endurnýjun eigi ekki við hjá Samfylkingunni í Reykjavík.
Samt er þetta sama fólkið og klappaði fyrir mótmælendum í Þjóðleikhússkjallaranum. Krafa þessara sömu mótmælenda var alger uppstokkun og endurnýjun. Og reyndar hefur samfylkingarfólkið sjálft heimtað endurnýjun og afsagnir og þvingað lög í gegnum Alþingi til að endurnýja í Seðlabankanum. En fólkið sem sat í ríkisstjórn á meðan allt hrundi og var margsinnis varað við yfirvofandi hættu, telur að það sé ómissandi. Það sem þetta fólk býður landsmönnum upp á er endurtekning, ekki endurnýjun.
Því hlýtur samfylkingarfólk að mótmæla, í ljósi fyrri orða sinna. Bryndís Ísfold sagði hér á Eyjunni: „…það er mikilvægt að við endurnýjum í þingliðinu okkar og reyndar annarra flokka líka. Nýir tímar á þessu landi kalla á nýjar leiðir því þær gömlu leiðir sem notaðar voru komu okkur í þetta ástand.“
Oddný Sturludóttir tekur í sama streng: „…við þurfum að gefa nýju fólki tækifæri til að sækja umboð sitt til þjóðarinnar innan raða gömlu flokkanna. Það er enginn ómissandi í pólitík. Þeir sem eru á annarri skoðun eiga alls ekki að vera í pólitík – svo einfalt er það.“ Og áfram: „Hvernig getur efnahagskerfi þjóðar hrunið án þess að einhver axli ábyrgð? Tiltekt og hreingerning. Það voru kröfurnar.“
Það er rétt hjá Oddnýju að þetta voru kröfurnar. Og í Morgunblaðinu í dag kemur fram að af þeim 3 ráðherrum sem voru í krísuráði ríkisstjórnarinnar hafa tveir ákeðið að draga sig í hlé: Geir H. Haarde og Árni M. Matthíessen. Aðeins einn þeirra neitar að hætta: Formaður Samfylkingarinnar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
27. febrúar, 2009
Margt snjallt fólk um allan heim er nú að reyna að útskýra efnahagshrunið í heiminum á einfaldan og snjallan hátt. Von er á fjölda bóka um efnahagshrunið sem munu skiptast í tvo meginhópa: Þær sem reyna að útskýra hvað gerðist í heild sinni, og hinar sem munu taka raunveruleg dæmi af óhófinu og ruglinu sem [...]
25. febrúar, 2009
Meiri þungi var í orðum Davíðs Oddssonar í Kastljósinu en ég hef áður heyrt frá honum. Enda erfitt að sjá hver væri ósnortinn af því sem yfir hann hefur riðið. Hér hefur því andrúmslofti verið komið upp að fullkomlega eðlilegt sé að bráðabirgðaríkisstjórn stundi pólitískar hreinsanir eða brottrekstra. Og þegar menn neita að skrifa afsagnarbréf [...]
24. febrúar, 2009
Eitt mikilvægasta verkefni hins boðaða stjórnlagaþings mun vera að draga úr „ráðherraræðinu“ eða „alræði ráðherranna“ og að auka vægi Alþingis. Hvort tveggja eru áhugaverð markmið og almenningur hefur tekið því vel að slík umræða fari fram.
Þess vegna er mjög einkennilegt að fylgjast með viðbrögðum við ákvörðun Höskuldar Þórhallssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, sem vildi ekki keyra mál [...]
23. febrúar, 2009
Það er mjög ánægjulegt að Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni sé að takast að leiða ríkisstjórnina í rétta átt, með því að leggja til að erlendir kröfuhafar í bönkunum eignist hluti í þeim. Össur Skarphéðinsson segist í dag vera hlyntur því að reyna þá leið og Steingrímur J. Sigfússon hefur frá upphafi talað af ágætu viti um [...]
21. febrúar, 2009
Markaðir hafa áratugum saman verið kallaðir ýmist Nauta- (bull) eða Bjarna- (bear) markaðir, eftir því hvort línuritin stefna upp eða niður. Kreppan núna er dæmi um slæman bjarnamarkað. Orðabækur geta ekki gefið neina afgerandi skýringu á þessum hugtökum, en „bull market“ hefur verið í Oxford orðabókinni síðan 1891. Sem útilokar kenninguna um að bjarnamarkaður heiti [...]
14. febrúar, 2009
Í Telegraph í dag er sagt frá því að Alex Salmond, oddviti skosku heimastjórnarinnar, noti enn hugtakið „hagsældarboginn“ (arc of prosperity) um litlar frjálsar þjóðir á borð við Írland, Ísland og Noreg. Skoski þjóðarflokkurinn undir stjórn Salmonds hefur lengi bent á þessar þjóðir sem fordæmi fyrir Skota, en flokkurinn berst sem kunnugt er fyrir sjálfstæði. [...]
13. febrúar, 2009
Fréttir berast nú af því að ríkisstjórnin hafi samþykkt fyrir sitt leyti að taka yfir byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhússins í Reykjavík. Reykjavíkurborg þarf að sjálfsögðu að samþykkja líka, en flestir eru sammála um að húsið geti ekki staðið eins og það er mikið lengur. Þá eru ýmsir samningar í uppnámi ef ekki verða teknar ákvarðanir.
Ekki [...]
11. febrúar, 2009
Þrátt fyrir að við séum í miðri kreppu, má ekki gleyma því að flestir íbúar heimsins hafa það margfallt verra en við. Langflestir Íslendingar eru aflögufærir um nokkrar krónur til að hjálpa þeir sem búa við ömurlegar aðstæður í fjarlægum löndum. ABC barnahjálp er til fyrirmyndar á öllum sviðum og starfið sem þar hefur verið [...]
10. febrúar, 2009
Eitt af því sem ég er að læra hérna í náminu mínu, er munurinn á því sem skipulagt er í borgum og hinu sem gerist í frjálsu vali einstaklinga. Einn af kúrsunum mínum á þessari önn heitir ‘Readings in Contemporary Architectural Theory’ þar við tökumst á við helstu umræðuefnin í arkitektúr síðustu áratugina. Þessi togstreita [...]