28. apríl, 2009

Slökkviliðspersónur og sekkjarpípur

Það leikrit sem ríkisstjórnarflokkarnir hafa nú sett á svið fyrir okkur almúgann, veldur ýmsum hugarangri. Að vísu vita allir hvernig leikritið endar, en höfundarnir virðast ekki vera með sannfærandi lausn á fléttunni sem við höfum fylgst með verða til í dag og í gær. Leikararnir virðast nefnilega hafa verið helst til málglaðir og hafa nú farið með ýmsar línur sem erfitt er að skrifa sig út úr.

Lausnin er hinsvegar fundin, og hvar annarsstaðar var hana að finna en í Evrópusambandinu? Þar viðgengst nefnilega mesta pólitíska rétthugsun sem veröldin hefur kynnst. Vinstri grænir hafa jafnan verið hrifnir af slíku og hver veit nema tilskipun Evrópuþingsins um „Kynja-hlutlaust tungumál“ frá því í síðasta mánuði geti kveikt í þeim ESB neistan.

Samkvæmt tilskipun þingsins er þingmönnum þess nú bannað að nota hin sármóðgandi orð frú og fröken þegar þeir ávarpa kvenkyns kollega sína. Þetta gildir um orðin „Miss“ og „Mrs.“ á ensku og um sambærileg orð annarra tungumála, svo sem „Madame“ og „Mademoiselle“, „Frau“ og „Fraulein“ og  „Senora“ og „Senorita“.

Draumaveröld Samfylkingarinnar hættir ekki þar. Tilskipunin tekur líka á augljósum árásum einsog þeirri að kalla slökkviliðsmenn (firemen) því hræðilega nafni. Manngert umhverfi þarf líka að skipta um nafn, enda „man-made“ greinilega ekki við hæfi. Ekki heldur „statesman“ eða „sportsman“ sem hvoru tveggja á að skipta út fyrir kynja-hlutlaus orð. Flugfreyjur (air-stewardess) fá líka reisupassann, rétt eins og skólastjórar og skólastýrur, sem og raunar allar aðrar stýrur og stjórar. Lögreglumenn (policeman) fá ekki að vera í friði, frekar en sölumenn (salesman), þannig að leikritið góða Sölumaður deyr (Death of a salesman), verður væntanlega Sölupersóna deyr. Það er óþarfi að taka fleiri dæmi, en það er svo sannarlega af nógu að taka.

Í Skotlandi hefur þetta mál rifjað upp baráttu sem fjöldi manns lét sig varða fyrir nokkrum mánuðum, til að verja sekkjarpípuna fyrir reglugerðagleðinni í Evrópusambandinu. Ný hávaðareglugerð frá Brussel, taldi að sekkjarpípuleikur gæti verið hættulegur heilsu fólks (aðallega hljóðfæraleikaranna sjálfra). Frá þessu var horfið eftir mikla fjölmiðlaumfjöllun og mótmæli.

Þetta er draumaríki Samfylkingarinnar. Þingmenn hennar geta ekki beðið eftir því að komast í hóp besservisseranna í Brussel til að segja okkur hinum hvernig við eigum að lifa lífinu.

27. apríl, 2009

Gísli skessa

Gísli Einarsson fréttamaður átti sennilega bestu stjórnmálagreiningu kvöldsins á kosninganótt. Hann þurfti reyndar bara að segja sannleikann, en jafnvel það reynist sumum ofraun.
Gísli (sem jafnan var kallaður Gísli skessa, á meðan hann var ritstjóri blaðsins Skessuhorns) var staddur á Kaffi Reykjavík á kosningavöku Vinstri grænna. Þrátt fyrir góðan árangur VG gátu heiðarlegir stjórnmálamenn hreyfingarinnar ekki [...]

26. apríl, 2009

Úrslitin og ESB

Nú keppast allir kratar í fjölmiðlastétt við að túlka niðurstöðu kosninganna þannig að þjóðin heimti að gengið verði í ESB. Það finnst mér einkennileg túlkun.
Samylkingin fékk meira fylgi í kosningunum árið 2003, þá líka með aðild að ESB á stefnuskrá sinni. Var það ákall þjóðarinnar um inngönguí ESB? Halldór Ásgrímsson var alltaf volgur fyrir því, [...]

24. apríl, 2009

Blekkingin um aðildarumsókn

Margir sega að nauðsynlegt sé að sækja um aðild að Evrópusambandinu til þess að „sjá hvað við fáum útúr aðildarviðræðum“. Það geti nú ekki verið svo hættulegt, enda muni þjóðin kjósa um samninginn sem útúr því komi.
Þetta er mikil blekking sem vísvitandi er beitt af Samfylkingunni, og hefur því miður virkað á ýmsa kjósendur. Ég [...]

23. apríl, 2009

G-blettur Steingríms J.

Hann var snöggur bletturinn sem Kolbrún Halldórsdóttir kom við á flokknum sínum í gær. Hún kom nefnilega við Græna blettinn, G-ið í nafni VG. Hann hefur jafnan verið falinn vandlega fyrir kosningar, sem hlýtur að vera óþolandi fyrir umhverfisráðherra sem starfar bara í örfáar vikur fyrir kosningar. Kolbrún og umhverfismálin hafa enda ekki sést frá [...]