11. júní, 2009

Hvað þéna þingmenn?

Eftir hneykslið vegna framtalins „kostnaðar“ bresku þingmannanna hefur verið talsverð umræða um það í Bretlandi og víðar hversu há laun skattgreiðendur ættu að borga þingmönnum sínum. Laun þingmanna eru mjög misjöfn eftir löndum, og ábyrgð þeirra einnig. Ég rakst á þessa einföldu framsetningu á launum þingmanna hinna ýmsu ríkja. Ég hef ekki sannreynt upplýsingarnar sem hérna koma fram og birti þetta því án ábyrgðar.

Smellið hér til að komast inn á síðuna.
Það eru útskýringar á síðunni, en í stuttu máli segir fjarlægðin frá miðjupunkti til um það hversu há þingmannslaun eru sem hlutfall af landsframleiðslu á mann. Fjarlægðin frá gulu línunni er tilbúin vísitala um gott stjórnarfar og stjórnsýslu. Þetta er meðaltal mælikvarðanna: Vísitala um þróun lífsgæða (Human Development Index) frá Sameinuðu þjóðunum, Lýðræðisvísitala Economist tímaritsins og Spillingarvísitala frjálsra samtaka (NGO transparency International).
Niðurstaðan er áhugaverð og við Íslendingar getum verið nokkuð ánægðir með okkur. Virðumst vera með besta stjórnarfarið og stjórnsýsluna og borgum þingmönnum okkar lág laun miðað við landsframleiðslu.

10. júní, 2009

Ljós í myrkrinu?

Kreppur breyta heiminum. Mjög ólíklegt er að vesturlönd muni á næstu árum byggja upp samfélag eins og það sem var á fyrstu árum 21. aldarinnar. Vonandi skila kreppuárin okkur heilbrigðu, umburðarlyndu og frjálsu samfélagi. Ég vona líka að mikilvæg mál eins og sjálfbærir lifnaðarhættir fái meiri athygli en áður og ýmislegt bendir til að svo [...]