27. janúar, 2010
Þegar ég var að koma af fundi umhverfis- og samgönguráðs í gær, rakst ég á þennan ágæta skúlptúr. Hermes er venjulega virðulegur þarna í Skúlatúninu, fylgist með mannfólkinu eins og sendiboða guðanna er eðlilegt. En með þennan hatt passar hann eiginlega betur inn í reykvískan veruleika. Maður fattar líka betur að hann er allsber og blár af kulda.

Þetta minnti mig á það að á Royal Mile í Edinborg er stytta af David Hume, sem stendur fyrir utan skoska hæstaréttinn. Það var nánast regla fremur en undantekning að þegar ég gekk framhjá honum á leiðinni á bókasafnið á laugardags eða sunnudagsmorgnun, hafði einhver haft fyrir því að poppa karlinn dálítið upp með því að setja á hann hatt.

Sumir kalla svona uppátækjasemi ákeðna tegund ‘graffiti’ en einhvernvegin hugnast mér þetta betur en krotið sem sést á veggnum fyrir aftan Hermes með hattinn.
26. janúar, 2010
Það er ánægjulegt að sjá hvað prófkjör okkar sjálfstæðisfólks á laugardaginn hefur fengið góð viðbrögð. Flestir virðast sammála um að baráttan hafi farið vel fram og að listinn feli í sér góða blöndu af nýliðum og fólki með reynslu. Ég tek undir það mat. Geir Sveinsson og Áslaug Friðriksdóttir verða að óbreyttu nýir borgarfulltrúar flokksins [...]
21. janúar, 2010
Þriðji og síðasti fyrirlesturinn minn fyrir þetta prófkjör var haldinn í Þjóðminjasafninu í gær. Húsfyllir var, eins og á fyrri fundum og hafa nú allir þrír fundirnir verið haldnir fyrir fullu húsi.
Það er sérstakt ánægjuefni að 400 manns skuli hafa haft nægan áhuga á borgarmálum til að sitja undir stífum fyrirlestri um framtíð Reykjavíkur í [...]
19. janúar, 2010
Nýjasta útspil ríkisstjórnarinnar er að beina spjótum sínum að sjávarútvegsfyrirtækjum landsins. Hún hótar því nú að fyrna aflaheimildir útgerðanna samkvæmt svokallaðri fyrningarleið. Allt stefnir í að sjávarútvegsfyrirtækin svari hótunum ríkisstjórnarinnar með því að sigla flotanum í land.
Hörð viðbrögð sjávarútvegsfyrirtækjanna við þessum afleitu áformum ríkisstjórnarinnar eru skiljanleg því afleiðingar þeirra munu hafa það í för [...]
18. janúar, 2010
Eins og hefur komið fram hér á síðunni hefur verið fullt á báða fyrirlestrana mína Þjóðminjasafninu um framtíðarsýn fyrir Reykjavík. Margir hafa því beðið um að fyrirlesturinn verði fluttur einu sinni enn, og ákveðið hefur verið að verða við þeim óskum.
Fyrirlesturinn: Reykjavík — hvað ætlar þú að verða þegar þú ert orðin stór? verður því [...]
16. janúar, 2010
Vísir.is var með jákvæða umfjöllun um fyrirlestrana mína í gær. Hér er fréttin þeirra:
Sjáið myndirnar! Sjáið kjólana og skartið! Eða þannig.
15. janúar, 2010
Reykjavík — hvað ætlar þú að verða þegar þú ert orðin stór? var aftur spurningin sem lá fyrir fyrirlestri sem ég hélt í Þjóðminjasafninu í kvöld. Þetta var endurtekning á fyrirlestrinum sem ég hélt fyrir viku, en þá var húsfyllir og fólk fór fljótlega að biðja um að erindið yrði endurtekið. Það var gert í [...]
12. janúar, 2010
Ákveðið hefur verið að halda aftur fundinn Reykjavík — hvað ætlar þú að verða þegar þú ert orðin stór? Síðast komust færri að en vildu, og fjölmargir hafa óskað eftir því að fyrirlesturinn verði endurfluttur. Við ætlum því að endurtaka leikinn á fimmtudaginn kl. 1730 í Þjóðminjasafninu.
Í fyrirlestrinum lýsi ég framtíðarsýn minni fyrir Reykjavík, ræði [...]
10. janúar, 2010
Kosningabaráttan hófst með fundi í Þjóðminjasafninu á fimmtudaginn, sem bar yfirskriftina: Reykjavík — hvað ætlar þú að verða þegar þú ert orðin stór? Fundurinn tókst vonum framar. Í gær var svo opinn vinnudagur, þar sem fólk mætti og þáði kaffi eða reif í símtólið. Mjög skemmtileg byrjun á prófkjörsbaráttunni, sem ég vona að muni snúast um framtíðarsýn.
4. janúar, 2010
Jafnvægið á milli borga og sveita breyttist á árinu 2007. Þá gerðist það í fyrsta skipti í mannkynssögunni að fleiri bjuggu í þéttbýli en dreifbýli. Árið 1900 bjó 10% mannkyns í borgum og búist er við að árið 2050 muni 75% mannkyns búa í borgum. Þetta breytir mjög miklu. Margir spá því að 21. öldin [...]