Samfylking í upplausn
Það er athyglisvert að sjá hvernig flokksmenn í Samfylkingunni ganga þvert gegn vilja formanns flokksins um þingkosningar. Eru þetta stuðningsmenn Össurar sem vilja grafa undan Ingibjörgu Sólrúnu með þessum hætti? Össur situr að svikráðum með Ögmundi Jónassyni á meðan formaður Samfylkingarinnar sannfærir forsætisráðherra í síma um að þau hlaupist ekki undan merkjum. Ingibjörg Sólrún hefur ítrekað lýst því yfir að bankakreppan kalli ekki á kosningar. Einhverntíma hefði fundurinn í gærkvöldi verið kallaður uppreisn gegn formanninum.
Í nóvember sagði Ingibjörg Sólrún að kosningar í vor væru alls ekki tímabærar. Nú í janúar breytti hún örlítið afstöðu sinni og sagði að kosningar í vor væru því aðeins nauðsynlegar, að Sjálfstæðisflokkurinn hafnaði algerlega aðild að Evrópusambandinu og þar með aðildarumsókn. Þessu hefur Ingibjörg Sólrún lýst yfir á fundum Samfylkingarfólks, í viðtölum í sjónvarpi og greinum í blöðum.
Það er því einkennilegt að sjá samfylkingarfólk, borgarfulltrúa jafnt sem alþingismenn, mæta í Þjóðleikhússkjallarann og ganga þvert gegn þessari stefnu formannsins. Engir ráðherrar voru á fundinum að sögn fjölmiðla.
Það virðist því augljóst að ráðherrar flokksins njóta ekki trausts meðal flokksmanna. Flokksmenn treysta ekki ráðum þeirra, lúta ekki leiðsögn þeirra. Er hægt að starfa með slíkum flokki?