20 mínútur?

Á borgarstjórnarfundinum í gær lagði Ólafur F. Magnússon fram tillögu um að það yrði kosið um framtíðarstaðsetningu flugvallarins, aftur. Tillagan fékk engar undirtektir og ég greiddi atkvæði með frávísunartillögu borgarstjóra, eins og 13 aðrir borgarfulltrúar. Ólafur var sem sagt einn fylgjandi tillögunni sinni.

Það væri gott ef Ólafur F. Magnússon og aðrir þeir sem eru á móti því að flytja flugvöllinn, myndu segja okkur hinum hversu langan tíma það má taka að þeirra mati að komast frá miðju Reykjavíkur út á flugvöll. Núna tekur það um 5 mínútur. Er það hámarkið? Eða getum við sæst á að það sé eðlilegt í borg eins og Reykjavík að það taki 20 mínútur að komast út á flugvöll? Þegar við höfum náð sátt um það hversu langan tíma þessi ferð má taka, getum við farið að skoða ýmsa spennandi möguleika. Það geta varla verið trúarbrögð að flugvöllurinn sé einmitt þar sem hann er. Ef við getum fundið honum annan stað, og tryggt góðar samgöngur til og frá vellinum á 20 mínútum, þá hlýtur allt skynsamt fólk að skoða þann möguleika.