Aftur húsfyllir á fyrirlestri!

Reykjavík — hvað ætlar þú að verða þegar þú ert orðin stór? var aftur spurningin sem lá fyrir fyrirlestri sem ég hélt í Þjóðminjasafninu í kvöld. Þetta var endurtekning á fyrirlestrinum sem ég hélt fyrir viku, en þá var húsfyllir og fólk fór fljótlega að biðja um að erindið yrði endurtekið. Það var gert í kvöld og tókst vel. Ég þakka þeim sem mættu og vona að þeir hafi notið vel. Fyrir þá sem ekki hafa séð fyrirlesturinn, bendi ég á myndböndin sem eru hérna á síðunni, sem sýna nokkur vel valin brot af fyrri fundinum.

Hér er ég að fara yfir það hvernig stemningin við Austurvöll breyttist við það að Vallarstræti og Thovaldsensstræti voru gerðar að göngugötum.


Ég set væntanlega fleiri myndir af þessum fundum inn á síðuna á næstu dögum. Það koma líka inn fleiri myndbönd innan tíðar, en það er talsverð vinna að koma þessu á rétt form og tekur tíma. Takk fyrir áhugann kæru vinir!