Allt er þá þrennt er!
Eins og hefur komið fram hér á síðunni hefur verið fullt á báða fyrirlestrana mína Þjóðminjasafninu um framtíðarsýn fyrir Reykjavík. Margir hafa því beðið um að fyrirlesturinn verði fluttur einu sinni enn, og ákveðið hefur verið að verða við þeim óskum.
Fyrirlesturinn: Reykjavík — hvað ætlar þú að verða þegar þú ert orðin stór? verður því fluttur í þriðja skiptið á miðvikudaginn kl. 1730, í Þjóðminjasafninu.
Ég hlakka til að sjá ykkur sem flest þar! Þeim sem eru að hugsa um að koma í annað (eða þriðja) skiptið, get ég lofað einhverju nýju efni.
Hér er eitt brot frá fyrsta fundinum.