Sjávarútvegur í Reykjavík
Nýjasta útspil ríkisstjórnarinnar er að beina spjótum sínum að sjávarútvegsfyrirtækjum landsins. Hún hótar því nú að fyrna aflaheimildir útgerðanna samkvæmt svokallaðri fyrningarleið. Allt stefnir í að sjávarútvegsfyrirtækin svari hótunum ríkisstjórnarinnar með því að sigla flotanum í land.
Hörð viðbrögð sjávarútvegsfyrirtækjanna við þessum afleitu áformum ríkisstjórnarinnar eru skiljanleg því afleiðingar þeirra munu hafa það í för með sér að flest sjávarútvegsfyrirtæki landsins munu fara á hausinn, verði þeim hrint í framkvæmd.
Nú kynni einhver að spyrja: Af hverju er borgarfulltrúi í Reykjavík að gera sjávarútvegsmál og áform ríkisstjórnarinnar um fyrningarleið í sjávarútvegi að umfjöllunarefni? Það er eðlilegt að sú spurning komi fram, en svar mitt við henni er þetta:
Sjávarútvegurinn og atvinnustarfsemi honum tengd hafa ákaflega mikla þýðingu fyrir Reykjavíkurborg í efnahagslegu- og atvinnulegu tilliti. Í borginni er rekin blómleg útgerð, þar sem fyrirtæki eins og HB Grandi, Ögurvík og Brim fara í broddi fylkingar. Hvergi á landinu er meiri verðmætum landað en í Reykjavíkurhöfn. Þar fyrir utan á fjöldi fyrirtækja um alla borg í miklum viðskiptum við sjávarútvegsfyrirtæki um land allt, hvort sem er í þjónustu, sölustarfsemi, flutningum eða á öðrum sviðum. Öll þessi umsvif skapa þúsundum Reykvíkinga störf og skila auk þess Reykjavíkurborg og Reykjavíkurhöfn gríðarlegum tekjum sem nýttar eru til þess að standa undir mikilvægri þjónustu við borgarbúa.
Í skýrslu endurskoðendafyrirtækisins Deloitte & Touche kom fram að fyrningarleið í sjávarútvegi myndi hafa skelfilegar afleiðingar fyrir ríkissjóð, bankana og ekki síst sjávarútveginn sem atvinnugrein. Slíkt hefði hörmulegar afleiðingar fyrir Reykjavík. Viðbúið er að okkar helstu sjávarútvegsfyrirtæki færu í þrot. Fjöldi fyrirtækja í borginni myndi missa viðskipti sín við sjávarútvegsfyrirtækin og fjöldi fólks myndi missa atvinnuna. Reykjavíkurborg yrði af mikilvægum tekjum sem leiða af þeim miklu umsvifum sem tengjast sjávarútvegi í borginni. Slíkur tekjumissir myndi skerða þjónustu við borgarbúa. Hér er því um að tefla gríðarlega mikilvægt atvinnumál sem varðar samfélagið allt.
Af þessum ástæðum eiga borgarfulltrúar í Reykjavík að standa gegn fyrningarleið ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi. Við eigum að standa með okkar fólki og fyrirtækjum hér í borginni, en ekki berjast gegn þeim. Þar liggja sameiginlegir hagsmunir okkar allra.