Hermes með hatt
Þegar ég var að koma af fundi umhverfis- og samgönguráðs í gær, rakst ég á þennan ágæta skúlptúr. Hermes er venjulega virðulegur þarna í Skúlatúninu, fylgist með mannfólkinu eins og sendiboða guðanna er eðlilegt. En með þennan hatt passar hann eiginlega betur inn í reykvískan veruleika. Maður fattar líka betur að hann er allsber og blár af kulda.

Þetta minnti mig á það að á Royal Mile í Edinborg er stytta af David Hume, sem stendur fyrir utan skoska hæstaréttinn. Það var nánast regla fremur en undantekning að þegar ég gekk framhjá honum á leiðinni á bókasafnið á laugardags eða sunnudagsmorgnun, hafði einhver haft fyrir því að poppa karlinn dálítið upp með því að setja á hann hatt.

Sumir kalla svona uppátækjasemi ákeðna tegund ‘graffiti’ en einhvernvegin hugnast mér þetta betur en krotið sem sést á veggnum fyrir aftan Hermes með hattinn.