Framtíðarsýn fyrir Silfur
Ég var í Silfri Egils á sunnudaginn að ræða um framtíðarsýn mína fyrir Reykjavík. Ég ræddi þar brot af því sem ég fór yfir í fyrirlestrinum: Reykjavík – hvað ætlar þú að verða þegar þú ert orðin stór? sem þið getið horft á hérna til hliðar. Ég hef fengið ákaflega góð viðbrögð við þessum þætti Egils, sem ég vona að bendi til þess að fólk sé tilbúið til að fara að ræða um framtíðina og það hvernig við sjáum næstu 50 ár fyrir okkur hér í þessari góðu borg.
Ég held að þið komist inn í þáttinn með því að smella hér. Ég var síðasti gesturinn í þættinum, þannig að þið spólið þangað ef þið viljið horfa.
Ef þetta klikkar er hægt að fara inn á http://silfuregils.eyjan.is/ og spila þáttinn þaðan.
