Myndum borg tókst! Myndir!
Á laugardaginn fór fram tilraunin Myndum borg á Melhaganum í Reykjavík. Upplýsingar um viðburðinn eru á heimasíðu verkefnisins á http://myndumborg.tumblr.com og þar er einnig að finna sumar af þeim myndum sem ég ætla að birta hér.
Afrakstur verkefnisins, myndirnar sjálfar sem teknar voru úr körfubíl Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins verða birtar innan fárra daga. Þessar myndir sem ég birti hér eru bara stemningsmyndir sem ég tók á símann minn. Þær sýna hinsvegar ágætlega þá skemmtilegu stemningu sem myndaðist í götunni þegar allir bílarnir voru farnir, og þann fjölda sem var mættur til að taka þátt í þessari tilraun, sem var bara auglýst á netinu og eingöngu gert með krafti sjálfboðaliða.
Ótrúlega gaman að sjá götuna þegar búið var að færa alla bílana í burtu. Það var líka svo áhugavert hvað kyrrðin var mikil, þótt þetta sé nú ekki mikil umferðargata alla jafna.
Um 100 sjálfboðaliðar mættu til að vera þátttakendur í þessum atburði. Það er svo sannarlega skemmtilegt að finna fyrir svona miklum áhuga á verkefni sem þessu, sem miðar að því að gera borgina okkar betri.
Plássið sem bílarnir taka sést betur á myndinni sem tekin er úr körfubílnum, en þetta sést svosem ágætlega á þessari mynd líka. Til að koma þessum hópi fólks á milli staða ef 1,2 eru í hverjum bíl, þá þarf að fylla götuna af bílum! Hversu skynsamlegt er það fyrir borgina? Þegar litið er til þess að um 40% þessara bíla eru á nöglum allan veturinn, kemur ekki á óvart að hundruð milljóna króna skuli fara í viðhald á götunum okkar, malbikun og fleira slíkt.
Allur hópurinn kemst hinsvegar auðveldlega fyrir í einum strætó. Og þessi tiltekni strætó er þar að auki svo vel gerður að hann keyrir á innlendu eldsneyti sem framleitt er úr rusli borgarbúa.
Hér er svo sami hópur með hjólin sín í bakgrunni. Hjólin taka lítið pláss, slíta götum lítið og valda fólki sem býr nálægt götunum ákaflega litlu ónæði.
Það var gaman að sjá hvernig gatan varð að leikvæði krakkanna um leið og það var búið að loka henni.






