Þakið á húsinu er grænt

Grænar byggingar eru ekki farnar að ryðja sér verulega til rúms hér á Íslandi. Í gær opnaði hinsvegar Snæfellsstofa, sem mun vera fyrsta byggingin á Íslandi sem fær svokallaða BREEAM vottun. BREEAM er breska útgáfan af umhverfisvottun fyrir byggingar, en þekktari er LEED, sem fundið var upp í Bandaríkjunum. Engin bygging í Reykjavík hefur fengið vottun af þessum toga, en mér skilst að Hús íslenskra fræða (Árnastofnun og geymsla fyrir handritin) sem reisa á vestan við Suðurgötu eigi að fá slíka vottun.

Víða í erlendum borgum hefur hinsvegar verið að ryðja sér til rúms skemmtileg grein af þessum græna geira. Þar hafa menn verið að nýta gamla gáma sem byggingarefni. Það er einföld og ódýr leið til að búa til margar íbúðir á stuttum tíma, og svo sannarlega græn samkvæmt mælikvörðum BREEAM og LEED. Gámaíbúðir leysa líka vandamál sem ýmsar borgir hafa glímt við, sem er að losa sig við gamla gáma sem hafa hlaðist upp. Þetta er því líka endurvinnsla eins og hún gerist best.

Hér eru nokkrar myndir af gámahúsum, fengnar af síðum sem auðvelt er að komast á með því að smella á myndirnar.

Frá Container City I í Lundúnum

Falleg bygging í Bretaníu í Frakklandi, gerð úr 4 gámum

Fallegt stúdío í New York fylki, gert úr 2 gámum (og reyndar öðru byggingarefni líka)