Gísli Marteinn Baldursson 2009-02-09T13:12:24Z WordPress http://www.gislimarteinn.is/?feed=atom admin <![CDATA[“…á hættu að vera látinn fjúka”]]> http://www.gislimarteinn.is/?p=120 2009-02-09T13:12:24Z 2009-02-09T13:05:27Z Jóhönnu Sigurðardóttur forstætisráðherra finnst ekkert athugavert við að hún reyni að hrekja seðlabankastjórana burt með hótunum. Hún var búin að lofa mótmælendunum því að reka þá úr embættum sínum, en sjálfsagt hefur Ögmundur Jónasson formaður BSRB minnt hana á réttindi og skyldur opinberra starfsmanna, þannig að hún bað þá um að reka sig sjálfa. Með þessu móti hefur forsætisráðherrann sjálfstæði seðlabanka að engu.

Nokkrar umræður voru um Seðlabankann á Alþingi á árunum 1999-2001. Davíð Oddsson var forsætisráðherra og undir hans stjórn var bankinn færður frá Viðskiptaráðuneyti til Forsætisráðuneytis, sem góð sátt var um á þingi. Víðtæk sátt var einnig um ný lög um Seðlabankann árið 2001, sem bankinn starfar nú eftir. Enginn greiddi atkvæði gegn þeim lögum. Meðal þess sem breyttist var ráðningatími seðlabankastjóra. Nefnd undir forystu Ólafs Davíðssonar, sem Steingrímur J. Sigfússon átti einnig sæti í, lagði til að seðlabankastjórar yrðu skipaðir til 7 ára, enda er það talið auka sjálfstæði seðlabanka almennt, að bankastjórarnir séu skipaðir til langs tíma. Áður gátu ráðherrar skipað seðlabankastjóra til jafnvel eins árs í senn, sem veitti þeim ekki mikið sjálfstæði.

Jóhanna Sigurðardóttir var hrifin af nýju lögunum og lengri ráðningatíma, og gagnrýndi harðlega gamla fyrirkomulagið á heimasíðu sinni: „Þetta getur varla þýtt annað á mæltu máli en að ef bankastjórinn fer ekki í einu og öllu að því sem forsætisráðherra segir þá eigi hann það á hættu að vera látin fjúka. Eðlilegri stjórnsýsluhættir væri að bankaráði réði sjálft einn bankastjóra sem ábyrgð bæri gagnvart bankaráði, sem gæti þá látið hann fara ef hann væri ekki starfinu vaxin, frekar en að hann sé háður duttlungum og geðþóttaákvörðun ráðherra á hverjum tíma.“ (leturbreytingar GMB).

Þetta er auðvitað alveg laukrétt hjá Jóhönnu. Það er algerlega óþolandi að búa við kerfi þar sem embættismenn eigi það á hættu að vera látnir fjúka, ef þeir eru ekki í náðinni hjá forsætisráðherra. Duttlungar hans og geðþóttaákvarðanir mega ekki ráða ferðinni.

]]>
0
admin <![CDATA[Stærð bankanna]]> http://www.gislimarteinn.is/?p=118 2009-02-05T10:15:35Z 2009-02-05T10:15:35Z Skuldir ríkisins er það sem helst mun hamla viðreisn Íslands á næstu árum. Ef lánin frá alþjóðlegum stofnunum verða jafn há og talað hefur verið um, og Icesave reikningar verða borgaðir upp í topp skiptir engu máli hversu snjöll við verðum á næstu árum; okkur verður haldið niðri af þessum skuldum. Mikilvægasta verkefni ráðamanna er að reyna að lágmarka þessar skuldir eins og kostur er. Nýr fjármálaráðherra virðist skilja þetta og lengi vel vildi hann hvorki borga Icesave reikningana né þiggja lánið frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Það virðist að vísu hafa breyst þegar hann eygði ráðherrasæti, en vonin er þó til staðar að hann átti sig á því að með skuldaklafann á okkur, verður erfitt að rísa upp.

Í því samhengi er athyglisvert að skoða stærð bankanna. Nú ætlar ríkið að setja 385 milljarða, í formi eigin fjár, inn í bankakerfið. Það eru gríðarlegar fjárhæðir, sem verða auðvitað teknar að láni, enda fjarri því að við eigum fyrir þessu. Við skattgreiðendur munum borga þetta lán næstu áratugina. En er ekki hægt að lækka þessa upphæð? Hvers vegna er ekki farið með bankana eins og hver önnur gjaldþrota fyrirtæki, og kröfuhafar eignast hluti í þeim? Þetta kann að vera misflókið eftir bönkum, en hlýtur þó að verða skoðað alvarlega því með þeim hætti gætum við minnkað verulega framlög okkar til bankanna.

Önnur leið er einfaldlega að hafa bankana ekki jafn risastóra og nú er stefnt að. 385 milljarðar inn í bankakerfið þykir flestum sem ég hef talað við í bönkunum stjarnfræðilega há tala. Til samanburðar má nefna að fyrir 10 árum var eigið fé íslensku bankanna rúmir 37 milljarðar, og dugðu bankarnir okkur þó ágætlega. Árið 2004 var talan komin upp í 238 milljarða eftir ótrúlegan vöxt. En í miðju efnahagshruni, þegar við þurfum að leita allra leiða til að draga saman útgjöld og minnka skuldir, ætlum við að setja 385 milljarða inn í bankakerfið. Skuldir sem munu leggjast ofaná aðra skuldabagga sem þjóðin tekur á herðarnar. Er ekki hægt að lækka þessa upphæð? Er ekki eðlilegt að við sem munum borga, höfum eitthvað um þetta að segja?

]]>
0
admin <![CDATA[Skipurit Seðlabankans og ábyrgð]]> http://www.gislimarteinn.is/?p=114 2009-02-03T16:18:24Z 2009-02-03T15:53:10Z Er það til of mikils mælst af ríkisstjórninni að hún segi okkur hvaða mistök yfirstjórn Seðlabankans gerði í aðdraganda bankahrunsins? Eða á hún eingöngu að segja af sér til að „endurreisa trúverðugleika Íslands gagnvart alþjóðasamfélaginu?“ Hvaða skoðun sem menn hafa á Davíð Oddssyni, þá held ég að þessi atriði ættu að liggja ljós fyrir. Telur ríkisstjórnin að Seðlabankinn hafi framfylgt vondri vaxtastefnu? Stóð hann of þéttan vörð um krónuna, sem þó er hlutverk hans? Átti hann að nota sterkari orð þegar hann varaði við yfirvofandi hættu? Seðlabankinn sjálfur hefur ítrekað beðið um að farið verði yfir ákvarðanir hans og aðgerðir, en nýja ríkisstjórnin ætlar ekkert að bíða eftir því. Hún metur það svo að mikilvægasta verkefnið fyrir gjaldþrota fjölskyldur í landinu sé að breyta skipuriti Seðlabankans. En eftir hvaða stefnu á nýi seðlabankastjórinn að vinna? Engin svör hafa komið fram um það og öllum virðist sama.

Þeir sem töluðu á fundum á Austurvelli í janúar sögðu að allir þeir sem héldu um stjórnartaumana í samfélaginu í aðdraganda bankahrunsins, ættu að segja af sér, eða verða reknir ella. „Vanhæf ríkisstjórn!“ var kallað og skrifað á spjöld. Hvernig stendur þá á því að sama fólk mótmælir ekki því að ráðherrar í „vanhæfu“ ríkisstjórninni skuli sitja áfram í ríkisstjórn? Héldu þeir ekki um stjórnartauma? Finnst þeim sem vildu að ALLIR segðu af sér, eðlilegt að SUMIR sitji áfram? Eða voru það kannski bara Sjálfstæðismenn sem áttu að segja af sér? Voru mótmælin flokkspólitísk eftir allt saman?

Hvað með „endurreisn trúverðugleikans gagnvart alþjóðasamfélaginu?“ Það væri kannski ráð að spyrja alþjóðasamfélagið hvort það sé í lagi að sömu ráðherrarnir sitji áfram, en taki til við að reka embættismenn sem eru þeim ekki að skapi.

Auðvitað var það fráleit krafa að ALLIR þeir sem gegndu einhverjum opinberum embættum fyrir hrun ættu að segja af sér eða vera reknir. Hvað með hina valdamiklu ráðuneytisstjóra? Átti að segja þeim upp? Greinilega ekki því ný ríkisstjórn gerir einn þeirra að ráðherra.

Það er óeðlilegt að minnihlutastjórn með takmarkað umboð ákveði hverjir skuli reknir og hverjir ekki, þegar á sama tíma er í gangi rannsókn á aðdraganda hrunsins. Það á svo sannarlega ekki að hlífa þeim sem bera ábyrgð á óförum okkar, en Samfylkingin á ekki að dæma um það hverjir það eru og hverjir ekki. Henni er ekki treystandi til þess.

]]>
0
admin <![CDATA[Majónesið þegar orðið gult]]> http://www.gislimarteinn.is/?p=111 2009-02-02T13:13:14Z 2009-02-02T13:13:14Z

Það er rétt að óska nýrri ríkisstjórn Íslands velfarnaðar. Við þurfum á því að halda að hún standi sig vel.

Vandræðagangurinn í kringum ríkisstjórnarmyndunina gaf þó tóninn um að ekki yrðu verkin merkileg. Ljóst er að einhverskonar yfir-ríkisstjórn mun hittast vikulega og ráða ráðum sínum. Þaðan munu ráðherrarnir fá línuna um hvert skuli stefna. Það er sérkennilegt.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins er sá eini sem hefur komið fram af festu í þessum málum. Athyglisverð var yfirlýsing hans um að þessi ríkisstjórn væri ekki óskastjórn hans. Að auki vissu allir hvað hann átti við þegar hann lýsti klækjastjórnmálum Samfylkingarinnar. Við sjálfstæðismenn fengum svo sannarlega að kynnast þeim á síðustu metrum stjórnarinnar sem innsigluð var með kossi. Kyssikonan ógurlega reyndist svo ekki hafa innistæðu fyrir kossinum.

Miklar efasemdir eru um hlutverk forsetans í þessari ríkisstjórnarmyndun. Hvers vegna lét forsetinn ekki reyna á það hvort möguleiki væri á meirihlutastjórn? Okkar stjórnskipunarhefðir gera ráð fyrir því að hér starfi ríkisstjórn sem hefur meirihluta Alþingis á bak við sig. Um það snýst þingræðið. Er einhver sérstök ástæða núna til að draga úr áhrifum þingsins með því að mynda minnihlutastjórn, en tala á sama tíma um að halda þurfi stjórnlagaþing til að auka völd þingsins?

Þá hefur Samfylkingin komist upp með að svara ekki grundvallarspurningunni: „Af hverju slituð þið stjórnarsamstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn?“ Það hefur komið fram að enginn málefnalegur ágreiningur var á milli flokkanna. Augljóst er líka af orðum Geirs H. Haarde að hann telur að Ingibjörg Sólrún hafi viljað halda stjórnarsamstarfinu áfram, en uppreisn hafi verið gerð í flokknum hennar. Uppreisnarliðið (klappliðið, sem klappaði fyrir mótmælendunum í Þjóðleikhússkjallaranum) hafði hinsvegar ekki merkilegra erindi en það, að þóknast háværustu mótmælendunum og reka Davíð Oddsson. Að minnsta kosti er krafan „kosningar strax“ ekki lengur uppi á borðinu.

Enda kemur það í ljós þegar þjóðarpúls Gallup er skoðaður að fylgi VG hrynur um leið og þeir stukku úr hópi mótmælenda og inn í hlýtt stjórnarráðið. Á sama tíma fer fylgi Sjálfstæðisflokksins upp. Fólk sér í gegnum valdafíkn Samfylkingarinnar, sem fyrst klappaði upp útrásarvíkinga en síðan grjótkastandi mótmælendur.

Veislan sem þessi ríkisstjórn býður til verður því miður dapurleg. Majónesið var þegar orðið gult þegar gestirnir mættu.

]]>
0
admin <![CDATA[Bylting fyrir byrjendur]]> http://www.gislimarteinn.is/?p=109 2009-01-27T14:01:01Z 2009-01-27T14:01:01Z Það er í senn sorglegt og hlægilegt að sjá ungliðahreyfingar Vinstri grænna og Samfylkingarinnar lýsa því að bylting hafi átt sér stað á Íslandi. Mótmæli eru ekki það sama og bylting. Jafnvel þótt ráðist sé á lögreglumenn, leiðtogi mótmælanna kalli krabbamein Geirs Haarde reykbombu og Útrásarpenni Baugs númer 1 ráðist á bíl forsætisráherra. Slíkt breytir mótmælum ekki í byltingu.

Í kjölfar alvarlegrar efnahagskreppu hefur almenningur orðið mjög óánægður með ríkisstjórnina og raunar alþingi allt. Fjöldi manns hefur mótmælt ástandinu, þótt saga undanfarinna áratuga geymi ótal mótmæli, og fögnuði, sem hafa dregið til sín miklu fleira fólk. Án þess að minnst hafi verið á byltingu.

En óánægjan hefur verið mikil. En hversu mikil? Þótt Vinstri Grænir séu núna með mikið fylgi, flokkast það varla sem bylting. Þeir hafa áður verið með svipað fylgi, 26% fyrir tveimur árum, en hrapað síðan þegar nálgast kosningar enda geðjast venjulegu fólki ekki að hugmyndum þeirra um stjórn landsins. Það er því ákaflega lýðræðislegt, ekki satt, að þeir komist núna til valda án kosninga?

Staðreyndin er sú að sé almenningur spurður, kemur í ljós að engin bylting hefur átt sér stað í þjóðfélaginu. Megn óánægja var með þá ríkisstjórn sem sat, og fólk lýsti þeim skoðunum sínum. Það sem var óvenjulegt núna, var að fámennur hópur mótmælenda gekk óvenju hart fram og náði, með ofbeldi og spellvirkjum, að fanga athygli fjölmiðla og samfylkingarfólks. Samfylkingin fór við þetta á taugum og sleit ríkisstjórnarsamstarfinu.

Fyrir vikið erum við í þeirri stöðu að á Íslandi er ekkert starfandi Fjármálaeftirlit, yfirstjórn Seðlabankans les það í fjölmiðlum að hún verði rekin eins fljótt og auðið er, og tveir flokkar eru að reyna að koma sér saman um það hvort það eigi að hætta við lánið frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og hvort það eigi að sækja um aðild að ESB. Þetta eru auðvitað smámál og engin ástæða til að mótmæla þessu ástandi, eins og sást fyrir framan Alþingishúsið í gærkvöldi og í dag. Mótmælendur virðast alveg sáttir við að dögum saman gerist ekkert nema það að þeirra fólk skipti á milli sín völdunum.

Staðreyndin er sú að þeir mótmælendur sem hæst höfðu, höfðu engan áhuga á lýðræði eða skoðunum þjóðarinnar. Sú stjórn sem nú er að fara frá völdum hafði stuðning 25% þjóðarinnar til að starfa fram að kosningum, skv. Fréttablaðskönnun á laugardaginn. Sannarlega lítill stuðningur og bagalegt að hafa stjórn með svo lítið fylgi. En af því Samfylkingin er svo lýðræðissinnaður flokkur, að ekki sé minnst á Vinstri græna, tekur nú við ríkisstjórn með stuðning 18.2% þjóðarinnar, samkvæmt sömu könnun. Algjör bylting.

]]>
0
admin <![CDATA[Hvaða Samfylking?]]> http://www.gislimarteinn.is/?p=107 2009-01-26T14:06:35Z 2009-01-26T14:06:35Z Samfylkingunni er sama um allt nema sjálfa sig. Þetta hefur komið ítrekað í ljós á undanförnum dögum. Völdin hafa verið tekin af Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og flokkurinn er margklofinn. Ingibjörg Sólrún sjálf virðist ekki einu sinni mjög heilsteypt í sínum yfirlýsingum.

Í nóvember sagði formaður Samfylkingarinnar að það að halda kosningar á þessu ári væri „eins og að halda aðalfund í slysavarnafélaginu á meðan björgunaraðgerðin stæði yfir,“ og sagðist ósammála þeim Björgvini G. Sigurðssyni og Þórunni Sveinbjörnsdóttur sem höfðu hvatt til kosninga.

Mánuði síðar var önnur Ingibjörg Sólrún til svara í vikulokunum á Ríkisútvarpinu. Þá taldi hún að kosningar yrðu nauðsynlegar EF Sjálfstæðisflokkurinn myndi ekki álykta eftir hennar höfði á landsfundinum í janúar. Enda gæti Samfylkingin ekki unnið með flokki með „gerólíka stefnu í peningamálum“. Í orðunum lá að ef við sjálfstæðismenn vildum sækja um aðild að Evrópusambandinu, þyrfti alls ekki að kjósa.

Við bæði þessi tækifæri tók Ingibjörg Sólrún sérstaklega fram að ríkisstjórnin stæði sterk, björgunaraðgerðir væru í fullum gangi, og mikilvægt væri að ekki kæmi rof í þær.

Fyrr í þessum mánuði komst Samfylkingarfélagið í Reykjavík að þeirri niðurstöðu, á milli þess sem það klappaði fyrir mótmælendum sem kveiktu bál og ruddust inn á fundinn, að slíta ætti stjórnarsamstarfinu strax og boða þegar í stað til kosninga. Leiðsögn Ingibjargar Sólrúnar í þessum málum var kastað algerlega fyrir róða. Hennar sýn um björgunaraðgerðirnar og aðalfund slysavarnarfélagsins var klöppuð út af borðinu. Mótmælendur og ofbeldismenn fyrir utan fundinn höfðu meira vægi en formaður flokksins.

Í dag og í gær hefur það svo gerst að Ingibjörg Sólrún hefur gert um það skýlausa kröfu að Samfylkingin fái forsætisráðuneytið. Engin málefnaleg sjónarmið liggja þar að baki. Engin rök hafa komið fram um að Geir Haarde hafi staðið sig illa í stóli forsætisráðherra. Þvert á móti hefur Ingibjörg Sólrún lýst yfir trausti sínu á Geir. Hugmyndin um að flokkarnir ákveði skyndilega núna að færa forsætisráðuneytið á milli flokkanna er að sjálfsögðu fráleit, og Ingibjörg Sólrún vissi það vel. Hún var knúin til að setja hana fram.

Málefnalega eiga Vinstri grænir og Samfylkingin litla samleið um þessar mundir. Eða telur Samfylkingin að Vinstri grænir fylgi sömu stefnu og hún í peningamálum? Vilja Vinstri grænir ganga í Evrópusambandið og taka upp Evruna?

Er Samfylkingin sammála þeirri stefnu Vinstri grænna að ekki beri að gera upp ICESAVE skuldirnar? Veit Samfylkingin hvaða áhrif það mun hafa á samskipti okkar við Evrópusambandið?

Er Samfylkingin sammála þeirri stefnu Vinstri grænna að best sé að semja okkur útúr láni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þegar í stað? Eða er þetta ennþá að mati þingmanna Samfylkingarinnar „eitthvað það óábyrgasta sem ég hef heyrt frá stjórnmálamanni“, eins og einn þeirra komst að orði fyrir nokkrum dögum?

Eru einhver mikilvægari mál en gjaldmiðilsmál, IceSave og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn núna? Um hvað yrði minnihlutastjórn þessara flokka mynduð?

Í miðjum björgunarleiðangrinum hefur Samfylkingin nú sóað nokkrum dögum í pólitíska kreppu í stað þess að reyna að vinna okkur útúr efnahagskreppunni. Rót þessarar pólitísku kreppu eru innanflokksátök Samfylkingarinnar, sem er margir flokkar. Ingibjörg Sólrún hefur lent undir í átökum innan flokksins. Hún vildi halda stjórnarsamstarfinu áfram og bjarga því sem bjargað verður, en mótmælendur innan og utan Samfylkingarinnar reyndust hafa meira vægi en formaðurinn.

]]>
0
admin <![CDATA[Stjórnmál og veikindi]]> http://www.gislimarteinn.is/?p=104 2009-01-23T14:49:36Z 2009-01-23T14:49:35Z Á síðustu 6 árum hafa 4 formenn stjórnmálaflokka á Íslandi greinst með krabbamein; Halldór Ásgrímsson, Davíð Odsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Geir H. Haarde. Það er ótrúlega hátt hlutfall og segir sína sögu um álagið sem er á þessu fólki. Ég veit það af kynnum mínum við þau að þau eiga það sameiginlegt að taka starfið inn á sig. Það sem keyrir þau áfram er áhuginn á að gera þjóðfélagið betra og það getur verið erfitt að stimpla sig útúr slíku starfi. Öll hafa þau líka tekist á við veikindi sín af æðruleysi, og leyfist mér að segja karlmennsku.

Ekki held ég að þeim líði vel sem köstuðu sér á bíl Geirs á dögunum og hafa sent honum og Ingibjörgu Sólrúnu bölbænir að undanförnu. Með því á ég auðvitað ekki við friðsama mótmælendur sem flestir hverjir hafa verið til sóma, heldur hina sem hafa skemmt fyrir sjálfum sér, öðrum mótmælendum og þjóðinni allri því myndir af ofbeldinu hafa birst flestum í fjölmiðlum hér í Bretlandi og þær munu svo sannarlega ekki auka ferðamannastraum til landsins.

Við hljótum öll að senda Geir H. Haarde og fjölskyldu hans bestu óskir okkar um góðan bata. Hlýjar hugsanir og góðir straumar hljóta að berast frá þjóðinni til hans í dag. Sama gildir um Ingibjörgu Sólrúnu sem nú er að koma til landsins, vonandi á batavegi. Megi þau bæði ná fyrri styrk og mæta öflug til leiks á ný.

]]>
0
admin <![CDATA[Samfylking í upplausn]]> http://www.gislimarteinn.is/?p=101 2009-01-22T09:11:34Z 2009-01-22T09:11:34Z Það er athyglisvert að sjá hvernig flokksmenn í Samfylkingunni ganga þvert gegn vilja formanns flokksins um þingkosningar. Eru þetta stuðningsmenn Össurar sem vilja grafa undan Ingibjörgu Sólrúnu með þessum hætti? Össur situr að svikráðum með Ögmundi Jónassyni á meðan formaður Samfylkingarinnar sannfærir forsætisráðherra í síma um að þau hlaupist ekki undan merkjum. Ingibjörg Sólrún hefur ítrekað lýst því yfir að bankakreppan kalli ekki á kosningar. Einhverntíma hefði fundurinn í gærkvöldi verið kallaður uppreisn gegn formanninum.

Í nóvember sagði Ingibjörg Sólrún að kosningar í vor væru alls ekki tímabærar. Nú í janúar breytti hún örlítið afstöðu sinni og sagði að kosningar í vor væru því aðeins nauðsynlegar, að Sjálfstæðisflokkurinn hafnaði algerlega aðild að Evrópusambandinu og þar með aðildarumsókn. Þessu hefur Ingibjörg Sólrún lýst yfir á fundum Samfylkingarfólks, í viðtölum í sjónvarpi og greinum í blöðum.

Það er því einkennilegt að sjá samfylkingarfólk, borgarfulltrúa jafnt sem alþingismenn, mæta í Þjóðleikhússkjallarann og ganga þvert gegn þessari stefnu formannsins. Engir ráðherrar voru á fundinum að sögn fjölmiðla.

Það virðist því augljóst að ráðherrar flokksins njóta ekki trausts meðal flokksmanna. Flokksmenn treysta ekki ráðum þeirra, lúta ekki leiðsögn þeirra. Er hægt að starfa með slíkum flokki?

]]>
0
admin <![CDATA[Ný forysta Framsóknar]]> http://www.gislimarteinn.is/?p=99 2009-01-20T16:36:08Z 2009-01-20T16:36:08Z Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er öndvegispiltur eins og ég kynntist þegar við unnum saman fyrir nokkrum árum. Ég óska honum til hamingju með kjörið. Það má einnig segja um Höskuld Þórhallsson sem varð annar. Þessir tveir menn boða nýja tíma í Framsóknarflokknum og mynda áhugaverða forystu.

Uppgjörið við Framsóknarflokk REI málsins, Framsóknarflokk Kaupþings-Búnaðarbanka, Framsóknarflokk Finns Ingólfssonar, Ólafs Ólafssonar og Pálma í Fons er eins afgerandi og það gæti frekast orðið. Páll Magnússon, sem er ágætur maður og skemmtilegur, fær vonda útreið sem ekki skrifast á hann heldur þann Framsóknarflokk sem hafnað var á þinginu og Páll hefur verið talinn tengjast. Fráfarandi formaður réri öllum árum að kjöri Páls, og útkoma hans segir því mikla sögu.

Ný forysta Framsóknar byrjar líka vel. Sigmundur Davíð hefur tekið óvænta forystu í Evrópumálum. Hann er óhræddur við ESB, en sogast ekki að jakkafötunum og forræðishyggjunni í Brussel á sama hátt Samfylkingarfólk.

Margir bíða vitaskuld eftir landsfundi okkar Sjálfstæðismanna, því eftir umfangsmikla vinnu undanfarinna vikna munum við skila hugmyndum okkar um Evrópumál á þeim fundi. Ég held að Sjálfstæðismenn muni átta sig á því fyrir fundinn að brýnni verkefni bíða úrlausnar núna, en einmitt framtíðarstaða okkar gagnvart ESB. Þess vegna finnst mér fremur líklegt að vinalega verði talað um Evrópusambandið og ekkert verði útilokað fyrir framtíðina, en það þjóni ekki hagsmunum þjóðarinnar að ganga í sambandið núna. Þar af leiðandi sé einnig óþarfi að sækja um.

Hallærislegar hótanir Samfylkingarinnar um stjórnarslit ef við viljum ekki ganga í ESB, verða ennþá hallærislegri þegar þessi niðurstaða liggur fyrir. Eða skyldi Samfylkingin vilja slíta stjórnarsamstarfinu vegna afstöðunnar til ESB og boða til kosninga? Samfylkingin hlyti þá að gera aðild að ESB að forsendu fyrir ríkisstjórnarsamstarfi. Með hverjum?

]]>
0
admin <![CDATA[Með eða á móti ESB]]> http://www.gislimarteinn.is/?p=97 2009-01-17T19:08:19Z 2009-01-17T19:08:19Z Mér finnst mjög einkennilegt að stjórnmálamenn og stjórnmálaflokkar skuli ekki geta tekið ákvörðun um það hvort þeir eru með eða á móti inngöngu í Evrópusambandið. ESB hefur um árabil verið meðal stærstu viðfangsefna stjórnmála í Evrópu og þeir stjórnmálamenn sem hafa ekki myndað sér skoðun á því hvort Ísland ætti að vera í sambandinu eða ekki, hafa ekki verið að fylgjast með.

Kostir og gallar Evrópusambandsins liggja ágætlega fyrir. Fjöldi annarra þjóða hefur gengið í sambandið á undanförnum árum og margir helstu ráðamanna þess hafa komið til Íslands og talað skýrt um kosti þess og galla fyrir okkur að gerast aðilar.

Aðeins einn flokkur hefur verið með inngöngu í ESB sem stefnumál; Samfylkingin. Sannfæringin hefur þó ekki verið sterkari en svo að kosningar eftir kosningar hefur hún ekki þorað að gera ESB að kosningamáli, en kvartað svo undan því að Sjálfstæðisflokkurinn skuli ekki hafa „sett ESB á dagskrá“. Þessa dagana ætlar Samfylkingin hinsvegar að nýta sér ófremdarástand í efnahagsmálum Íslands til að afla ESB fylgis. Það er ódýr tækifærismenska.

Sjálfur er ég þeirrar skoðunar að við getum ekki afsalað okkur yfirráðum yfir mikilvægustu auðlindum landsins og innganga í ESB komi því ekki til greina að svo stöddu. Áfram er auðvitað lykilatriði að við náum góðum samningum við sambandið og full ástæða er til að ætla að svo verði.

Aðildarumsókn til að sjá hvað við fengjum, er óþarfi ef menn eru þessarar skoðunar.

Hitt er annað mál að samvinna Evrópuþjóða er nauðsynleg og ESB er að mörgu leyti afbragðs fyrirbæri. Ísland á að sjálfsögðu heima í Evrópu og við þurfum að eiga mikil og góð samskipti við einstakar þjóðir álfunnar, rétt eins og ESB.

]]>
0