Þétting byggðar
Stundum finnst mér eins og hugtakið ‘þétting byggðar’ hafi óþarflega neikvæða ímynd. Of margir halda að þétting byggðar þýði að háhýsi verði skellt niður á græna blettinn fyrir framan hjá þeim. Sú er auðvitað ekki raunin.
Í Reykjavík liggja fyrir nokkur augljós þéttingaverkefni, sem öll felast í að breyta svæðum sem nú eru eingöngu notuð undir atvinnustarfsemi, í blandaða byggð. Atvinnusvæði þessi voru áður í útjaðri byggðar og voru því ekki hönnuð sem vönduð borgarbyggð. Þar sem þau eru nú inni í miðri borg, er ástæða til að hanna svæði upp á nýtt, og bjóða fólki upp á að búa í nýjum fallegum íbúðum á þessum eftirsóttu svæðum, en hlúa líka að atvinnustarfseminni. Óhreinn iðnaður er þegar fluttur í burtu (hafi hann verið til staðar) en eftir standa ágæt atvinnurými á fremur illa nýttum reitum. Dæmi um þessi svæði eru til dæmis Skeifan, Ártúnshöfðinn, Flugvöllurinn og hafnarsvæðið (t.d. Örfirisey). Með blandaðri byggð er átt við hverfi sem býður upp á allt í senn: Atvinnusvæði, verslanir, þjónustu og íbúðir. Í Skeifunni væri til dæmis hægt að reisa byggingar þar sem jarðhæðin væri hærri en venjulega, og aðgengi gott fyrir aðföng. Þannig gæti sú blómlega verslunarstarfsemi sem er nú þegar í Skeifunni haldið áfram að blómstra, en á efri hæðum væru skrifstofur og íbúðir. Þannig gæti fjöldi manns búið í Skeifunni, en hún héldi samt áfram hlutverki sínu sem mikilvægur verslunarkjarni í borginni. Sama gildir um hin svæðin.
Í grunninn snýst þétting byggðar um að stytta vegalengdir fyrir þá 30 þúsund Reykvíkinga sem við gætum boðið íbúðir á þessum svæðum, en þyrftu annars að byggja sér hús fyrir austan núverandi byggð, með tilheyrandi kostnaði fyrir borgina og fjölskyldurnar. Kostnaður fyrir aðra borgarbúa er líka mikill. Ef við ætlum okkur ekki að þétta, heldur byggja eingöngu austar, munu tæplega 30 þúsund bílar bætast á umferðaræðarnar sem ganga í gegnum borgina, og ausa mengun og hávaða yfir þau hverfi sem liggja á milli. Grafarvogur á til dæmis á hættu að verða gegnumaksturshverfi, rétt eins og Hlíðarnar urðu þegar byggðin óx austur fyrir þær. Þá er einnig einboðið að ferðatími milli austurs og vesturs mun lengjast verulega ef öllum er gert að fara þessa sömu leið kvölds og morgna. Það er nefnilega dreifð byggð sem skapar umferðarteppur, ekki þétt.
Ný íbúðasvæði miðsvæðis myndu bjóða upp á frábær lífsgæði, betri möguleika til að ganga eða hjóla til vinnu, þau liggja alveg við samgönguæðar, er nú þegar þjónað vel af almenningssamgöngum, eru í nágrenni við frábær útivistarsvæði og svo mætti lengi telja. Fyrir utan það augljósa hagræði sem felst í því að ekki þarf að brjóta nýtt land undir íbúðabyggð, með tilheyrandi kostnaði við vatns- og rafmagnslagnir, vegagerð og landmótun.

