16. apríl, 2010

Ekið á barn

Enn ein fréttin barst í gær um að bíl hefði verið ekið á barn í Reykjavík. Ekkert þekki ég til málsins en vona að meiðsli séu ekki alvarleg og sendi öllum hlutaðeigandi hlýjar hugsanir.

Verstu fréttir sem foreldrar geta fengið er að eitthvað hafi komið fyrir barnið þeirra. Það er þessvegna hörmulegt til þess að vita að í hverri viku verður slys á gangandi vegfarenda í Reykjavík og í hverjum mánuði verður alvarlegt slys á gangandi vegfarenda. Þetta er allt of mikið, og allir eru sammála um það.

Einfaldasta leiðin til að fækka þessum slysum er að hægja á umferð í hverfum borgarinnar og draga úr henni. Það er hinsvegar ótrúlegt hvað sumir eru tregir í taumi þegar kemur að því að tryggja öryggi barnanna okkar í hverfunum. Sumir ökumenn bregðast illa við þegar settar eru fram tillögur um að lækka hraða inni í hverfum. En það er einmitt hraðinn sem skiptir mestu máli.

Eins og sést á þessu súluriti eru sáralitlar líkur á því að gangandi vegfarandi láti lífið ef bíllinn sem ekur á hann er á 32 km/klst eða minna. (20 mph=32 km/klst). En ef bíllinn ekur á 48 km/klst aukast líkurnar hinsvegar verulega, og hinn gangandi vegfarandi á ekki nema um helmingslíkur á að lifa slíkan árekstur af (30 mph=48 km/klst). Þetta er einmitt ástæðan fyrir því að borgarstjórn samþykkti einróma á dögunum að lækka hraða í hverfum borgarinnar. (Pistil minn um það má sjá hér.) Umhverfis- og samgönguráð tók þá tillögu fyrir á þriðjudaginn og samgönguskrifstofa borgarinnar vinnur nú að útfærslum á henni.

14. apríl, 2010

Viltu 20% kauphækkun?

Meðalfjölskylda á Íslandi eyddi á árunum 2005-2007 rúmlega 15% heimilistekna sinna í kaup og rekstur ökutækja. Þetta kom fram í skýrslu frá Hagstofunni í desember. Það hlutfall hefur nánast örugglega hækkað verulega, enda kostar rekstur bíls miklu meira nú en þá (bensínhækkanir, afborgarnir af lánum …) og tekjur heimilanna hafa dregist saman. Varlega áætlað má [...]

8. apríl, 2010

Kryddjurtarækt í stofuglugga

Michelle Obama hóf aprílmánuð á því að planta aftur í matjurtargarðinn við Hvíta húsið. Hún segist hafa fengið mörg hundruð kíló af grænmeti og kryddjurtum upp úr garðinum í fyrra og ætlar nú að stækka garðinn. Í því skyni sté hún sérstakan „vaxtar-dans“ til að hvetja grænmetið til að gróa. Þessi ógleymanlega mynd náðist af [...]

7. apríl, 2010

Minni hraði í hverfunum

Í gær mælti ég, ásamt Borgarstjóra, fyrir mikilvægri tillögu um að umferðahraði í hverfum borgarinnar verði minnkaður. Tillagan var samþykkt einróma.
Ástæða þess að við leggjum þessa tillögu fram núna, er að hröð bílaumferð er farin að standa hverfunum fyrir þrifum. Foreldrafélög og íþróttafélög hafa kvartað undan því að börn komist ekki sjálf leiðar sinnar innan [...]