27. ágúst, 2010

Hjóla Paul

25. ágúst, 2010

Hækkun OR

Ég hef nær eingöngu heyrt talað um gjaldskrárhækkun OR í prósentutölum. Staðfest hefur verið að þetta er tveggja stafa tala, en við borgarfulltrúar sem ekki sitjum í stjórn fyrirtækisins vitum ekkert meira en hver annar Reykvíkingur hvort talan verður 10% eða 30% eða eitthvað þar á milli.
En venjulegt fólk sem þarf að borga hitareikninginn sinn [...]

24. ágúst, 2010

Stjórnmál á hjólum

Það er athyglisvert hvað hjólreiðar vekja upp sterk pólitísk viðbrögð hjá fólki. Margir vinir mínir í hópi frjálshyggjumanna hafa horn í síðu hjólreiða og fara ekki leynt með það. Finnst einhver sósíalistalykt af þeim og tengja þær við kröfugerðahópa um aukin útgjöld, sem eru þeim ekki að skapi. Aðrir frjálshyggjumenn víða um heim hafa tekið hjólreiðar [...]

23. ágúst, 2010

Suðurgata - Háskóli

Í sigurtillögu Vatnsmýrarsamkeppninnar var háskólasvæðinu gefinn sérstakur gaumur. Hugmynd Graeme Massie og Stuart Dickson sem unnu keppnina var að Suðurgatan yrði breiðstræti í gegnum háskólasvæðið, sem myndi jafnframt tengja byggingar vestan og austan megin götunnar betur en nú. Slík breiðstrætis-hugmynd er að mínu mati miklu betri en göng undir Suðurgötuna, eins og háskólinn hefur lengi [...]

18. ágúst, 2010

Hverjir borga fyrir ókeypis bílastæði?

Góður maður benti mér á grein í New York Times, sem birtist um helgina. Greinina skrifar prófessor í hagfræði í George Mason háskólanum í Bandaríkjunum, Tyler Cowen. Hann hefur skrifað mikið um hagfræði hins daglega lífs og hefur velt fyrir sér matarmenningu, listum og frægð í tengslum við hagfræði. Áhugaverður maður.
Í greininni í Times um [...]

12. ágúst, 2010

Hjólavefsjá

Á fundi umhverfis- og samgönguráðs í dag lögðum við fulltrúar D listans fram eftirfarandi tillögu:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í umhverfis- og samgönguráði leggja til að gerð verði Hjólavefsjá fyrir Reykjavík. Vefsjáin verði gagnvirk vegvísun sem sýnir borgarbúum á einfaldan hátt hvernig hjólafólk kemst frá A til B á sem fljótlegastan og öruggastan hátt. Borgarbúar geti slegið inn [...]