27. september, 2010

Útgjöld heimilanna

Útgjöld heimilanna eru meira áberandi nú eftir hrun en áður, sem eðlilegt er. Nýjasta rannsókn Hagstofu Íslands á útgjöldum heimilanna var birt á síðasta ári og byggir á stórri rannsókn sem gerð var á árunum 2006 til 2008.

Stærstu útgjaldaliðir heimilanna samkvæmt þeirri rannsókn eru þessir:

Húsnæði, hiti og rafmagn: 25,9% (hlutfall af öllum neysluútgjöldum heimilisins)

Ferðir og flutningar: 16,5%

Matur og drykkjarvörur: 12,9%

Stærsta liðinn er erfitt að minnka fyrir allt venjulegt fólk. Menn losa sig ekki svo auðveldlega við húsin sín núna, auk þess sem börn eru byrjuð í skólum í tilteknum hverfum og þrautin þyngri að finna annað húsnæði í því hverfi og svo framvegis. Ekki þarf að fjölyrða um hækkun Orkuveitunnar á hita og rafmagni, sem hækkar enn þessa tölu.

Liðinn „Ferðir og flutningar“ á hinsvegar að vera hægt að lækka, sérstaklega fyrir íbúa höfuðborgarinnar. Nær öll útgjöldin undir þessum lið fara í kaup og rekstur ökutækja eða 85% (pakkaferðir til útlanda eru undir öðrum lið). Það er í raun einkennilegt hversu lítið fer fyrir umræðu um það hvernig við getum lækkað þessi útgjöld. Kannski eru svörin of einföld: Taka strætó, hjóla, ganga, skipuleggja sameiginlegar bílaferðir í vinnu og svo framvegis.

Þetta er ein ástæða þess að ég og ýmsir fleiri viljum leggja aukna áherslu á að stytta vegalengdir í borginni, auðvelda fólki að hjóla á milli staða og halda áfram að bæta strætó sem samgöngukost. Það er óeðlilegt ástand í borg að allir þurfi að fara á bíl hvert sem þeir vilja komast. Það kostar heimilin í borginni ekki bara kaup og rekstur bíla, heldur þurfa þessi sömu heimili að borga hærra útsvar ef allir aka um á einkabílum. Það sér það hver maður að ef t.d. þriðjungur borgarbúa myndi hjóla til vinnu, væri kostnaður við samgöngumannvirki, viðhald gatna og svo framvegis miklu lægri. Að ekki sé minnst á svifryksmengun, hávaða og umferðaröryggismál. Til framtíðar á svo að sjálfsögðu að skipuleggja borgina þannig að byggðin sé þéttari, fleiri búi nálægt stærstu atvinnukjörnum og skólum og vegalengdir séu styttri.

Á meðan fjöldi fólks er tilbúinn til að ganga býsna langt til að lækka verð matarkörfunnar (jafnvel alla leið inn í Evrópusambandið - þótt óvíst sé hverju það skili), er undarlega lítil umræða um leiðir til að lækka þann lið sem étur upp meira af ráðstöfunartekjum heimilisins og er miklu einfaldara að lækka, hafi fólk áhuga á því.

24. september, 2010

Videóið sem allir eru að tala um

Hér fyrir neðan er myndband sem sýnt var á ráðstefnunni Myndum borg sem ég hef örlítið verið að nefna hér á síðunni í undanförnum færslum. Margir sem sáu það þar, hafa óskað eftir því að myndbandið yrði sett á netið, og hér er það komið. Óskar Þór Axelsson kvikmyndagerðamaður fékk að vera fluga á vegg [...]

22. september, 2010

Myndir! Borg!

Málþingið Myndum borg var haldið í Hafnarhúsinu í Listasafni Reykjavíkur á föstudaginn. Skemmst er frá að segja að málþingið tókst framar öllum vonum. Troðfullt var í salnum, erindin frábær og mikill og góður rómur gerður að plakatinu sem góðir menn höfðu gert fyrir okkur og myndbandi sem sýnt var af uppákomunni 19. júní í sumar, [...]

20. september, 2010

Tillaga verður að veruleika

Á laugardaginn var formlega tekin í notkun ný hjólavefsjá fyrir Reykjavík, http://www.hjolavefsja.is. Eins og lesendur síðunnar muna fluttum við fulltrúar D lista í umhverfis- og samgönguráði tillöguna fyrir nokkrum vikum. Hún var að lokum samþykkt með öllum greiddum atkvæðum, og með góðri samvinnu okkar og meirihlutans hefur nú tekist að opna flotta hjólavefsjá. Ég skora [...]

17. september, 2010

Í dag kl. 15:00!

Ráðstefnan Myndum borg verður haldin í dag kl. 15-17 í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu. Þeir sem tala eru:
Jón Gnarr borgarstjóri
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra
Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi
Sigrún Helga Lund, stofnandi Samtaka um bíllausan lífsstíl
Ólafur Mathiesen, arkitekt hjá Glámu Kím
Bergur Ebbi Benediktsson, skáld og lögfræðingur
Páll Hjaltason, formaður skipulagsráðs
Samtök um bíllausan lífsstíl halda ráðstefnuna, en til grundvallar liggja myndirnar þrjár [...]

16. september, 2010

Frábært myndband

Hér er myndband sem nokkrir Bandaríkjamenn gerðu um Kaupmannahöfn þegar þeir voru á ráðstefnu um hjólreiðar þar í sumar. Ég veit að einhverjir íslenskir hjólreiðamenn voru á þessari ráðstefnu, en ég held að enginn hafi farið frá Reykjavíkurborg. Það er eiginlega fyndið hvað kanarnir eru stóreygir yfir því hvað Kaupmannahafnarbúar hjóla mikið og hvað þetta [...]

14. september, 2010

Tré og borg og logn

Þetta er kannski dálítið þráhyggjukennt hjá mér með trén og borgina (sjá undanfarnar færslur), en þessi mynd rak á fjörur mínar og lýsir á skemmtilegan (og auðvitað ýktan, einsog margt sem er skemmtilegt) hátt stöðu trjáa í borgum. Ég veit því miður ekki hver uppruni myndarinnar er.

Í Reykjavík eigum við auðvitað mikið af opnum svæðum, [...]

14. september, 2010

Nágrannaerjur um tré

Lesandi síðunnar benti mér á þessa frétt af The Guardian í kjölfar skrifa minna um borgartré. Hér er um að ræða ansi þrjóskan mann í Plymouth, sem hefur staðið deilum við nágranna sína árum saman. Nú er það þetta tré sem veldur deilum, kannski engin furða:

Nágrannaerjur vegna trjáa koma raunar mjög reglulega upp í Reykjavík [...]

13. september, 2010

Borgartré

Ég sá í blöðunum í morgun að fólk er að velja tré ársins útum allt land. Þegar ég gúglaði sá ég að Skógræktarfélag ríkisins hefur tvisvar sæmt reykvískt tré þessum titli: Álminn á Túngötu 6 árið 1999 (hann sést varla lengur fyrir hótelinu á horni Túngötu og Aðalstrætis, en stendur glæsilegur þar fyrir aftan) og [...]

10. september, 2010

Nefndi einhver þéttingu byggðar?

Ljósmyndarinn Michael Wolf er einn af fjölmörgum listamönnum sem hefur borgina að viðfangsefni. Tvö verkefni hans hafa vakið sérstaka athygli mína að undanförnu, sem bæði tengjast háhýsum. Fyrra verkefnið heitir The architecture of density eða Þéttbýlis-arkitektúr, en þar tók Wolf myndir af fjölbýlishúsum í Hong Kong. Í stað þess að láta turnana bera við himinn, [...]