31. ágúst, 2012

Landspítalinn

Þrennt sem er mikilvægt að sé á hreinu í umræðunni um Landspítalann:

* Landspítalinn þarf að fá nýja byggingu og á að fá hana.

* Deiliskipulagið sem nú er í kynningu er hinsvegar fráleitt.

* Eina vitið er að byggja fallega nýja álmu norðan gömlu Hringbrautar, eins og ég hef til dæmis fjallað um hér. Þannig höldum við gömlu Hringbrautinni, höldum ásýndinni að Landspítalabyggingu Guðjóns Samúelssonar, nýtum þær byggingar sem fyrir eru og spörum pening.

Í þeim plönum sem nú liggja fyrir stendur hinsvegar til að byggja meira en 200 þúsund fermetra til viðbótar við þá 73 þúsund fermetra sem fyrir eru. Samtals verða byggingar á reitnum um 290 þúsund fermetrar þegar allt er komið. (Smáralindin er 62.730 fermetrar, Borgarspítalinn er 30 þúsund fermetrar og Harpan er 28 þúsund fermetrar).

Bílastæðahúsin á reitnum ein og sér eru jafn stór og Borgarspítalinn og Harpan til samans.

Það sem flækir þessa umræðu er að meirihlutinn í borgarstjórn og aðrir talsmenn verkefnisins eru farnir að tala nær eingöngu um 1. áfanga verkefnisins, og segja að þetta sé nú ekkert mikið byggingarmagn. „Í fyrsta áfanga er áformað að byggja 76 þúsund fermetra á árunum 2013 til 2018 fyrir spítalastarfsemi.“ Takið eftir orðunum fyrir spítalastarfsemi. Það er hinsvegar talsverð blekking fólgin í því að tala um 76 þúsund fermetra í fyrsta áfanga. Á heimasíðu verkefnisins má finna Excel skjal með helstu staðreyndum (ekki öllum þó). Þar kemur eftirfarandi fram:

Fyrsti áfangi Síðari áfangi
20 Viðbót við K byggingu 750
21 Meðferðarkjarni / Legudeildir 58,500 10,000
22 Rannsóknarhús 14,000 4,500
23 Háskóli Íslands, Keldur 10,000 4,000
24 Sjúkrahótel 4,300 2,500
25 Vörumóttaka / sorpmiðstöð 3,000
26 Tengigangar neðanjarðar 1,900 600
27 Tengibrýr, 2. hæð eða ofar 850
28 Göngudeild / legudeidir 20,000
29 Háskóli Íslands / sjúkrahús 11,000
30 Tæknirými bílageymslu vestur 1,500
30a Atvinnuhús vestan bílag. húss vestur 2,750
31 Tæknirými í bílageymslu austur 1,500
Bílageymslur ofanjarðar 14,000 5,500
Bílageymslur neðanjarðar 22,900 30,500
SAMTALS 134,450 90,100

Það er því mjög villandi, svo ekki sé meira sagt, að segja að fyrsti áfangi sé 76 þúsund fermetrar, jafnvel þótt bætt sé við „fyrir spítalastarfsemi“. Fyrsti áfangi er samkvæmt þessu 134,450 fermetrar, til við bótar við þá 73 þúsund fermetra sem fyrir eru. Hvers vegna er villandi upplýsingum sem þessum haldið fram?

Þar að auki er það augljóst að ef við ætlum okkur að byggja eingöngu þennan fyrsta áfanga, þá er þetta skipulag náttúrulega algjörlega galið. Ef okkur vantar bara 76 þúsund fermetra í spítalastarfsemi, hvers vegna þá að hlamma þunglamalegri byggingu niður beint ofan á gömlu Hringbrautina og framfyrir gömlu Landspítalabyggingu Guðjóns Samúelssonar? Fylgum heldur hugmyndum sem birtast í þessari grein (http://www.gislimarteinn.is/?p=1135) og hefjum undirbúning að hóflegri uppbyggingu innan núverandi lóðar norðan við gömlu Hringbrautina. Það þarf ekki að taka langan tíma.

Ég má til með að vekja athygli á góðum skrifum Hilmars Þórs Björnssonar um málið á undanförnum dögum. Síðan hans er hér: http://blog.pressan.is/arkitektur/. Við Hilmar erum ekki sammála um allt, en hann færir góð rök fyrir sínu máli og er opinn fyrir skoðunum annarra. Sjálfur tel ég að hófleg uppbygging sé rétt staðsett við Hringbrautina, og hef minni áhyggjur en Hilmar af umferðarmálum, þótt vissulega þurfi að leysa ákveðin mál. Ég held það eigi við um Hilmar líka, að fyrst þegar þetta skipulag kom fram, taldi ég að það væri vel heppnað ef ákveðnir þættir yrðu lagaðir. Að mínu mati hefur skipulagið hinsvegar versnað í því ferli sem síðan hefur verið í gangi, auk þess sem augu mín hafa opnast fyrir ýmsum afgerandi göllum við þetta skipulag eftir því sem ég hef legið lengur yfir því.

Frestur fólks til að gera athugasemdir við deiliskipulagið sem nú er í auglýsingu rennur út þriðjudaginn 4. sept. Athugasemdir má senda á netfangið og ég hvet alla þá sem hafa skoðanir á þessum áformum til að senda stutta línu.

27. ágúst, 2012

Borgalíf er brunnur dáða

Engin skortur er á ljóðum sem dásama náttúru Íslands. Ljóð um borgarlíf eru færri, enda borgarlíf á Íslandi ungt. Það var því gaman að rekast á ljóð eftir Matthías Jochumsson, sem færir fram hárrétt og nútímaleg rök fyrir þéttingu byggðar. Inntakið er : Það er gott að búa í nábýli við annað fólk. Þéttbýlið eflir [...]

23. ágúst, 2012

Skipulag Reykjavíkur og Vatnsmýrin

Ég skrifaði á dögunum grein í Fréttablaðið, sem var svar við orðum Ögmundar Jónassonar. Í Morgunblaðinu birtist skömmu síðar svargrein við grein minni, frá Leifi Magnússyni (sem Hilmar Þór Björnsson gerði ágæt skil hér á Eyjunni). Ég svaraði Leifi í Morgunblaðinu í dag og sú grein er hér að neðan.
—
Um árabil hefur verið skýr meirihluti [...]

17. ágúst, 2012

Framtíðarbyggð í Vatnsmýri

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra vill að Vatnsmýrin verði notuð undir flugvöll til frambúðar, frekar en að þar verði blönduð byggð. Honum er auðvitað frjálst að hafa þessa skoðun, en hann viðurkennir jafnframt að það sé Reykjavík sem fari með skipulagsvald á svæðinu og hún „taki því ákvörðun um það sjálf“ hvernig landið sé nýtt. Allt þetta [...]