11. apríl, 2014

Nýi Sjálfstæðisflokkurinn

Kjarninn er að skrifa um væringarnar á hægri vængnum í íslenskri pólitík. Það er allt saman áhugavert og maður verður var við heilmikinn áhuga á þessu nýja framboði - bæði á hægri og vinstri vængnum, þótt ólíkar ástæður liggi að baki þeim áhuga.

Ég held að mesta áhyggjuefnið fyrir Sjálfstæðisflokkinn sé ekki það að missa ESB-sinnaða kjósendur flokksins yfir til nýs flokks. Þeir eru ekkert það margir. Áhyggjuefnið fyrir Sjálfstæðisflokkinn er að fólk sem skilgreinir sig til hægri í stjórnmálum muni kjósa nýja-sjálfstæðisflokkinn þrátt fyrir Evrópustefnu hans.

Aðeins 56% þjóðarinnar skilgreinir sig sem „alfarið hlynt/mjög hlynt“ aðild að ESB eða „alfarið andsnúin/mjög andsnúin“ aðild að ESB.[Hér stóð upphaflega 66% sem var klaufavilla]

Hin 44% segjast annað hvort vera „hlutlaus“ eða „frekar hlynt“ eða „frekar andsnúin“ aðild. Þessi tæpi helmingur þjóðarinnar er semsagt ekki mjög harður í afstöðunni til ESB og telur sennilega að aðrir hlutir skipti meira máli. Þar liggja möguleikar nýs flokks á hægri vængnum.

[Ég er með vikulegt fréttabréf, þeir sem vilja skrá sig á það geta gert það hér.]

9. apríl, 2014

Kópavogur og skipulagsmál

Virkilega gaman að þessu Kópavogsmáli. Eina sem ég er óánægður með, er hvað fáir hafa nýtt sér þetta ágæta tækifæri til að ræða það hvort skipulag Kópavogs undanfarin ár og áratugi hafi verið vel heppnað. Það er mjög áhugaverð umræða og gæti verið góð bæði fyrir Kópavog og önnur sveitarfélög. Ég held að þar hefði [...]