Breyttir hagir

Kæru vinir.
Ég set þessa fyrstu færslu mína inn núna þegar ég er nýkominn til Edinborgar. Síðan er einmitt sett upp til að vera málpípa mín á meðan ég verð með annan fótinn hérna í Skotlandi í náminu mínu. Og best er að ég geri þá grein fyrir þeim málum, þótt mörg ykkar þekkið það nú þegar úr fjölmiðlum.

Við fjölskyldan höfum ákveðið að dvelja nú í vetur við nám í Edinborg. Ég fer í mastersnám í Edinborgarháskóla, sem heitir MSc in the City (http://www.ace.ed.ac.uk/city/index.html). Þetta er mjög spennandi prógram sem sameinar margskonar viðfangsefni borgarlífs, allt frá skipulagsmálum og arkitektúr yfir í hagfræði borga, hagkvæmni samgangna, húsnæðismála og þess sem þeir kalla „urban politics“. Námið er 12 mánuðir, en við komum heim næsta sumar og ég geri ráð fyrir að skrifa mastersritgerðina heima. Ég hef nú síðsumars verið að dunda mér við að klára BA námið mitt, og lýk því nú um mánaðarmótin. Vala verður í einskonar fjarnámi í Háskóla Íslands, þar sem hún er að skrifa mastersritgerð. Dætur okkar fara í skóla í Edinborg, en koma eitthvað til Íslands í vetur og fá þá að sitja í sínum bekkjum í Melaskóla til að missa ekki tengslin.

Ég mun af þessum sökum hætta í umhverfis- og samgönguráði, skipulagsráði, stjórnkerfisnefnd og borgarráði, en ég ætla að vera borgarfulltrúi áfram og koma heim á eins marga borgarstjórnarfundi og ég mögulega get, enda ekki nema ein klukkustund og fjörtíu mínútur að fljúga til Íslands frá Skotlandi. Að loknu námi kem ég svo tvíefldur til baka; eldri, reyndari og vonandi einhvers vísari og tek af fullum krafti við skemmtilegum verkefnum í samgöngu, skipulags og umhverfismálum.

Nýr meirihluti í borginni má engan tíma missa við að skipuleggja falleg hverfi, leggja grunn að hreinni borg sem ber virðingu fyrir umhverfinu, lyfta upp grænu svæðinu og þar fram eftir götunum. Ég hlakka til að vera þátttakandi í því.