Hjólavefsjá
Á fundi umhverfis- og samgönguráðs í dag lögðum við fulltrúar D listans fram eftirfarandi tillögu:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í umhverfis- og samgönguráði leggja til að gerð verði Hjólavefsjá fyrir Reykjavík. Vefsjáin verði gagnvirk vegvísun sem sýnir borgarbúum á einfaldan hátt hvernig hjólafólk kemst frá A til B á sem fljótlegastan og öruggastan hátt. Borgarbúar geti slegið inn upphafsstað og leiðarenda, og vefurinn sýni um leið fljótlegustu leiðina, öruggustu leiðina, vegalengd og ferðatíma.
Tillögunni fylgdi greinargerð, en einfaldast er að sýna þetta með dæmi erlendis frá, þar sem slíkir vefir hafa sannað sig rækilega. Hér er mynd af svona hjólavefsjá frá Seattle:
Smellið hér til að komast á vefinn www.ridethecity.com/seattle
Eins og sjá má velur fólk upphafsstað og leiðarenda og vefurinn sýnir öruggustu leiðina. Einnig er hægt að kalla fram fljótlegustu leiðina, sem er þá ekki jafn örugg. Vegalengdir eru líka sýndar, brekkur og áætlaður tími sem tekur að komast á milli. Tæknilega er mögulegt að notendur fái leiðina senda í gps tæki eða farsíma.
Tæknin til að gera þetta er þegar til staðar og vefur strætó byggir til dæmis á svipuðu kerfi.
Hjólreiðafólki fjölgar stöðugt í Reykjavík og margir nýir hjólreiðamenn eru á götum borgarinnar í hverjum mánuði. Með gagnvirkri vefsjá er hægt að auka öryggi hjólreiðafólks og gera þennan góða samgöngumáta enn aðgengilegri. Inn á sömu vefsjá væri hægt að setja öruggar göngu- og hjólaleiðir skólabarna í borginni.
Nú liggur fyrir metnaðarfull hjólaáætlun Reykjavíkurborgar, Hjólaborgin Reykjavík sem unnin var á síðasta kjörtímabili af þverpólistískum starfshópi sem ég leiddi. Í henni er kveðið á um tíföldun hjólastíga á næstu tíu árum, og fimmföldun á næstu fimm árum. Í anda þess hefur umhverfis- og samgönguráð ákveðið að 10 kílómetrar af hjólastígum verði lagðir á ári, næstu 3 ár. Í Reykjavík umfangsmikið stígakerfi, sem gerir Reykjavík nú þegar að góðri hjólaborg, en það þarf að gera miklu betur. Hjólavefsjá er liður í að gera hjólreiðar að aðgengilegum og öruggum samgöngumáta í Reykjavík.
Nýi meirihlutinn í borginni, Samfylking og Besti flokkurinn, frestaði afgreiðslu tillögunnar í umhverfis og samgönguráði í dag.