Eyðum meira fé í ferðir en mat
Samkvæmt nýlegri skýrslu Hagstofu Íslands verja heimilin í Reykjavík næststærstum hluta af ráðstöfunarfé sínu í ferðir um borgina. Það að komast á milli staða í Reykjavík kostar meira en að brauðfæða fjölskylduna. Þessu er hægt að breyta með skynsamlegra skipulagi. Með þéttari byggð, meiri nálægð heimilis við vinnustaði og meiri fjölbreytileika í samgöngum. Í fyrirlestri mínum - Reykjavík — hvað ætlar þú að verða þegar þú ert orðin stór? - fjallaði ég sérstaklega um samgöngumálin í Reykjavík:
Í Reykjavík höfum við ekki boðið fólki að búa í borg í þéttri byggð. Bílaeign í Reykjavík er líklega heimsmet. Sé miðað við fjölda bíla á hverja eitt þúsund íbúa, sker Reykjavík sig mjög úr þegar miðað er við borgir í nágrannalöndunum og þær borgir heims, sem taldar hafa verið hvað lífvænlegastar. Veruleg aukning hefur orðið í bílaeign í Reykjavík frá árinu 1995, þegar við stóðum samt framar öðrum í fjölda bíla á hverja þúsund íbúa.
Mikilvægt er að auka fjölbreytni í samgöngum. Bjóða aðra möguleika en bílinn, því mikið meiri fjölgun bíla í Reykjavík og aukinn umferðarþungi mun draga úr lífsgæðum, sökum mengunar og annars sem fylgir mikilli umferð. Ég vil ekki þröngva öðrum ferðamáta upp á Reykvíkinga, heldur skipuleggja byggðina þannig til framtíðar að auðveldara sé að komast til og frá vinnu og skóla, fótgangandi eða hjólandi fyrir þá sem það kjósa. Að almenningssamgöngur séu bættar og að minni þörf verði á því að hver fjölskylda eigi fleiri ein einn bíl þótt hverjum og einum verði það að sjálfsögðu í sjálfsvald sett. Boðið sé upp á fleiri kosti þannig að lífsgæðin í Reykjavík aukist.