Stjórnmál og veikindi
Á síðustu 6 árum hafa 4 formenn stjórnmálaflokka á Íslandi greinst með krabbamein; Halldór Ásgrímsson, Davíð Odsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Geir H. Haarde. Það er ótrúlega hátt hlutfall og segir sína sögu um álagið sem er á þessu fólki. Ég veit það af kynnum mínum við þau að þau eiga það sameiginlegt að taka starfið inn á sig. Það sem keyrir þau áfram er áhuginn á að gera þjóðfélagið betra og það getur verið erfitt að stimpla sig útúr slíku starfi. Öll hafa þau líka tekist á við veikindi sín af æðruleysi, og leyfist mér að segja karlmennsku.
Ekki held ég að þeim líði vel sem köstuðu sér á bíl Geirs á dögunum og hafa sent honum og Ingibjörgu Sólrúnu bölbænir að undanförnu. Með því á ég auðvitað ekki við friðsama mótmælendur sem flestir hverjir hafa verið til sóma, heldur hina sem hafa skemmt fyrir sjálfum sér, öðrum mótmælendum og þjóðinni allri því myndir af ofbeldinu hafa birst flestum í fjölmiðlum hér í Bretlandi og þær munu svo sannarlega ekki auka ferðamannastraum til landsins.
Við hljótum öll að senda Geir H. Haarde og fjölskyldu hans bestu óskir okkar um góðan bata. Hlýjar hugsanir og góðir straumar hljóta að berast frá þjóðinni til hans í dag. Sama gildir um Ingibjörgu Sólrúnu sem nú er að koma til landsins, vonandi á batavegi. Megi þau bæði ná fyrri styrk og mæta öflug til leiks á ný.