Skipurit Seðlabankans og ábyrgð
Er það til of mikils mælst af ríkisstjórninni að hún segi okkur hvaða mistök yfirstjórn Seðlabankans gerði í aðdraganda bankahrunsins? Eða á hún eingöngu að segja af sér til að „endurreisa trúverðugleika Íslands gagnvart alþjóðasamfélaginu?“ Hvaða skoðun sem menn hafa á Davíð Oddssyni, þá held ég að þessi atriði ættu að liggja ljós fyrir. Telur ríkisstjórnin að Seðlabankinn hafi framfylgt vondri vaxtastefnu? Stóð hann of þéttan vörð um krónuna, sem þó er hlutverk hans? Átti hann að nota sterkari orð þegar hann varaði við yfirvofandi hættu? Seðlabankinn sjálfur hefur ítrekað beðið um að farið verði yfir ákvarðanir hans og aðgerðir, en nýja ríkisstjórnin ætlar ekkert að bíða eftir því. Hún metur það svo að mikilvægasta verkefnið fyrir gjaldþrota fjölskyldur í landinu sé að breyta skipuriti Seðlabankans. En eftir hvaða stefnu á nýi seðlabankastjórinn að vinna? Engin svör hafa komið fram um það og öllum virðist sama.
Þeir sem töluðu á fundum á Austurvelli í janúar sögðu að allir þeir sem héldu um stjórnartaumana í samfélaginu í aðdraganda bankahrunsins, ættu að segja af sér, eða verða reknir ella. „Vanhæf ríkisstjórn!“ var kallað og skrifað á spjöld. Hvernig stendur þá á því að sama fólk mótmælir ekki því að ráðherrar í „vanhæfu“ ríkisstjórninni skuli sitja áfram í ríkisstjórn? Héldu þeir ekki um stjórnartauma? Finnst þeim sem vildu að ALLIR segðu af sér, eðlilegt að SUMIR sitji áfram? Eða voru það kannski bara Sjálfstæðismenn sem áttu að segja af sér? Voru mótmælin flokkspólitísk eftir allt saman?
Hvað með „endurreisn trúverðugleikans gagnvart alþjóðasamfélaginu?“ Það væri kannski ráð að spyrja alþjóðasamfélagið hvort það sé í lagi að sömu ráðherrarnir sitji áfram, en taki til við að reka embættismenn sem eru þeim ekki að skapi.
Auðvitað var það fráleit krafa að ALLIR þeir sem gegndu einhverjum opinberum embættum fyrir hrun ættu að segja af sér eða vera reknir. Hvað með hina valdamiklu ráðuneytisstjóra? Átti að segja þeim upp? Greinilega ekki því ný ríkisstjórn gerir einn þeirra að ráðherra.
Það er óeðlilegt að minnihlutastjórn með takmarkað umboð ákveði hverjir skuli reknir og hverjir ekki, þegar á sama tíma er í gangi rannsókn á aðdraganda hrunsins. Það á svo sannarlega ekki að hlífa þeim sem bera ábyrgð á óförum okkar, en Samfylkingin á ekki að dæma um það hverjir það eru og hverjir ekki. Henni er ekki treystandi til þess.