Samfylking og Besti fella tillögu um endurvinnslu plasts
Eftirfarandi tillögu lögðum við Áslaug Friðriksdóttir fram á fundi umhverfis- og samgönguráðs í dag, 26. júní:
Lagt er til að Reykjavík hefji eins fljótt og auðið er söfnun endurvinnsluefna við heimili, þar á meðal plasti. Tilboða verði leitað í þessa þjónustu, og söfnun geti hafist á haustmánuðum.
Í þessari tillögu felst að heimili í Reykjavík kæmust jafnfætis þeim tugum þúsunda heimila á landsbyggðinni sem flokka heimilisúrgang og koma honum þannig í endurvinnslu. Við Íslendingar erum svo heppnir að hér á landi starfa góð einkafyrirtæki sem standa framarlega í endurvinnslumálum. Raunar hafa þau rutt brautina í þessum málaflokki og hið opinbera iðulega verið nokkrum árum á eftir.

Nú þegar til stendur að breyta endurvinnslu í Reykjavík, hefði verið kjörið að bjóða heimilunum í borginni að flokka allt sorp bæði pappír og plast og selja svo efnið sem dýrmætt hráefni, einsog endurvinnslufyrirtæki á einkamarkaði gera.
En meirihlutinn felldi tillögu okkar Áslaugar um aukna endurvinnslu, og ætlar að halda áfram að urða plast uppi í Álfsnesi. Til að tryggja að enginn hendi pappír í svörtu tunnuna, ætlar meirihlutinn hinsvegar að ráða nýja borgarstarfsmenn, sérstakar sorplöggur sem munu athuga hverju við erum að henda í tunnurnar! En löggan verður hinsvegar hæstánægð með þá sem henda plasti í tunnurnar, þótt það mengi auðvitað miklu meira en pappír. En svona var bókun okkar Áslaugar:
Óskiljanlegt er af hverju Samfylkingin og Besti flokkurinn þora ekki að taka skref inn í framtíðina með söfnun á plasti, rétt einsog öðrum endurvinnsluefnum. Ekkert er því til fyrirstöðu að hefja slíka söfnun þegar í haust, nema metnaðarleysi meirihlutans. Afstaða þeirra er því bæði sorgleg og skaðleg fyrir umhverfið enda ljóst að plast verður áfram grafið í jörð í Álfsnesi, í stað þess að selja það til endurvinnslu.