Icesave

Það er nú ansi veikt hjá forsvarsmönnum þessarar ríkisstjórnar að tala um að nú megi alls ekki leita sökudólga. Þetta er sama ríkisstjórn (og þingflokkar) og ákvað einmitt að leita sökudólga eftir bankahrunið og gekk svo langt að kalla saman Landsdóm til að freista þess að fá Geir Haarde dæmdan sem sökudólg hrunsins. Staða Össurar og Ögmundar er að því leyti sterkari í dag þegar allir vildu Lilju kveðið hafa, að þeir tóku ekki þátt í þeim skammarlega leiðangri.

Þeir geta hinsvegar ekki vikið sér undan því að þeir sögðu já við fyrsta Icesave samningnum, eins og allir þingmenn Samfylkingarinnar og Vinstri Grænna. Sá samningur hefði haft hrikalegar afleiðingar fyrir Ísland, eins og ótal fræðimenn hafa bent á. Fyrr í dag skrifaði dósent í hagfræði grein um þetta hér á Eyjuna.

Hér er svo heimasíða Áfram hópsins, sem barðist fyrir því að þriðji og síðasti Icesave samningurinn yrði samþykktur. Sá samningur var vissulega allt annars eðlis en hinir fyrri, en engu að síður hljóta sigurvegarar dagsins í dag að vera það fólk sem stóð gegn hvers kyns samningum allan tímann og hélt fram lagalegum rétti Íslands. Flestir í þeim hópi unnu sín störf í sjálfboðavinnu með ekkert annað að leiðarljósi en hagsmuni íslensku þjóðarinnar. Það væri óskandi að allir hefðu haft svo skýrt erindi.