RSS .92| RSS 2.0| ATOM 0.3
  • Aðalsíða
  •  

    Bataóskir til ISG

    Það er full ástæða til að senda Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur hugheilar óskir um góðan bata. Veikindi hennar eru erfiðari og meiri en flestir gerðu sér grein fyrir í upphafi og ákvörðun hennar um að setja heilsuna í fyrsta sæti er skiljanleg og skynsamleg. Það var líka ljóst að flokksþing og framhald þess hefði orðið erfitt fyrir hana, þar sem stuðningur við formennsku hennar í Samfylkingunni virtist mestur í þröngum hring flokkseigenda en þvarr mjög eftir því sem utar var farið í flokknum eins og sást í könnunum.

    Nú er ljóst að tveir stærstu flokkarnir á Íslandi, sem njóta stuðnings um 60% landsmanna, munu skipta um formenn á næstu vikum. Hvorugur fráfarandi formanna hefur setið mjög lengi, um 4 ár hvor.

    Talsverður munur er á því hvernig flokkarnir tóku á veikindum formannanna. Þegar veikindi Ingibjargar Sólrúnar komu upp, veittu sjálfstæðismenn í ríkistjórn henni fullt svigrúm til að ná bata og aldrei heyrðist annað en alger stuðningur við hana í baráttu sinni. Samfylkingin reyndi hinsvegar að nýta sér veikindi Geirs í pólitískum tilgangi, og sagði upp í opið geðið á honum að hann gæti ekki verið forsætisráðherra svona veikur. Þegar Geir bauðst þá til að stíga til hliðar fyrir Þorgerði Katrínu, kom í ljós að markmiðið var að koma samfylkingarkonu í stól forsætisráðherra og veikindin voru yfirvarp. Sömuleiðis var einkennilegt að sjá hópinn sem klappaði sem mest fyrir ófriðlegum mótmælendum í Þjóðleikhússkjallaranum, gera uppreisn gegn Ingibjörgu Sólrúnu þar sem hún lá á sjúkrabeði í Svíþjóð.

    Það er skiljanlegt að Ingibjörg Sólrún stígi til hliðar við þessar aðstæður og skapi líkama sínum aðstæður til að jafna sig. Þótt mér þyki ekki mikið til flokks hennar koma um þessar mundir, vona ég af heilum hug að hún nái fullum bata og íslenskt þjóðfélag geti notið óumdeildra krafta hennar í framtíðinni.

    Comments are closed.