Endurnýjun og endurtekning
Sú mikla endurnýjun sem varð í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins í gær er fagnaðarefni. Sigurvegarar prófkjörsins í Reykjavík: Illugi Gunnarsson, Pétur Blöndal, Ólöf Nordal og Sigurður Kári, voru öll utan innsta valdakjarnans í Sjálfstæðisflokknum undanfarin ár. Ekkert þeirra sat í ríkisstjórn og raunar voru þau öll fremur gagnrýnin á ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Þeir sjálfstæðismenn sem sátu í ríkisstjórninni höfðu ýmist ákveðið að hætta fyrir þetta prófkjör, settu stefnuna neðar en áður eða biðu ósigur. Ekkert þeirra þriggja sem hrepptu fyrsta sætið í Reykjavík, kraganum eða suðurlandi höfðu áður verið oddvitar kjördæmisins, heldur stíga fram sem nýir, fremur ungir og glæsilegir leiðtogar. Þetta eru kynslóðaskipti og skýr skilaboð frá sjálfstæðisfólki.
Í Samfylkingunni var ekki það sama uppi á teningnum. Tveir efstu menn í Reykjavík sátu í ríkisstjórn hrunsins. Annar þeirra ákafur talsmaður REI og orkuútrásarinnar. Engin krafa virðist vera uppi í Samfylkingunni um að þetta fólk axli ábyrgð. Það væri fróðlegt að vita hvers vegna samfylkingarfólki finnst þau vera undanskilin því að axla ábyrgð. Eða axlar maður ábyrgð með því að vera hækkaður í tign?
Ég sé að stuðningsmenn Samfylkingarinnar halda því fram á netinu að það sé hvorki endurnýjun hjá Sjálfstæðisflokknum né Samfylkingunni. Þar kríta menn býsna liðugt í þágu síns flokks. Sjálfstæðisflokkurinn endurnýjaði í gær, Samfylkingin endurtók.
Málefnalega er einnig athyglisvert að skoða niðurstöðurnar. Sjálfstæðisflokkurinn kýs til forystu fólk sem hefur sýnt sjálfstæða hugsun og fært fram nýjar hugmyndir. Þetta fólk er ekki hrætt við umræðuna um Evrópusambandið og tekur henni opnum örmum, þótt það eigi það sameiginlegt að telja hag okkar betur borgið utan sambandsins. Umhverfismálin hafa einnig verið reifuð skynsamlegar af Illuga Gunnarssyni en mörgum öðrum. En á sama tíma og hann er gerður að oddvita í Reykjavík, hafnar Samfylkingin umhverfisráðherranum sínum, Þórunni Sveinbjarnardóttur. Enginn oddvita Samfylkingarinnar hefur skilning eða áhuga þeim málaflokki. Hvar er Fagra Ísland núna?