Kynjað ráðaleysi
Það var athyglisvert að horfa á endurkomu stjórnmálamannanna í Silfur Egils á sunnudaginn. Þar sátu efstu menn Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og VG úr kraganum auk formanns Framsóknarflokksins og ræddu efnahagsástandið.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson lýsti verulegri óánægju með ríkisstjórnina og ráðaleysi hennar. Sem betur fer voru þarna tveir fulltrúar ríkisstjórnarinnar sem gátu bent okkur áhorfendum á það hvað hún væri að gera. En þrátt fyrir ágætar spurningar Egils komu engin svör. VG vill „breyta hugsunarhættinum“ og „hverfa frá nýfrjálshyggjunni“. (Þeim finnst greinilega ekki nóg að þjóðnýta alla bankana, eins og gert hefur verið, og öll stærstu fyrirtæki landsins, eins og er að gerast þessa dagana). Þá vill VG „finna milljarðana“ sem þeir telja að Baugur og félagar hafa falið. Innlegg Samfylkingarinnar er að ganga í ESB, og ekkert annað komst að í þættinum, eins og Egill benti réttilega á. Þetta var raunverulega það eina sem fulltrúar ríkisstjórnarinnar sögðu. Þetta er ekki sú ríkisstjórn sem við þurfum á þessum stórhættulegu tímum.
Bjarni Benediktsson var mjög sterkur í þættinum. Hans rök voru í fyrsta lagi þau að við eigum ekki að eyða mikilvægum tíma og orku í að fella dóma um hluti sem verið er að rannsaka með þeim víðtækustu heimildum sem þekkst hafa. Í staðinn eigum við að einbeita okkur að aðgerðum fyrir heimilin í landinu, nokkuð sem ríkisstjórnin er ekki að gera. Mikill þungi var í orðum Bjarna og ég þykist vita að margir þeir sem eru vel inni í málunum telji að það versta sé ekki yfirstaðið. Það eru falsvonir sem ríkisstjórnin er að vekja með yfirlýsingum einsog þeim sem gefnar voru í gær um skjótan bata efnahagslífsins.
Ekkert bólar á margboðuðum efnahagspakka ríkisstjórnarinnar og ég er viss um að flestir Íslendingar ættu í erfiðleikum með að útskýra í fáum setningum hvað ríkisstjórn landsins er að gera. Að vísu er hún að setja lög um súludans og „kynjaða hagstjórn“. Það mun aldeilis gera gæfumuninn fyrir heimilin í landinu.