Margrét Thatcher – 30 ára afmæli
Í dag eru 30 ár síðan Margrét Thatcher stóð ein fyrir utan Downingstræti 10, svaraði spurningum blaðamanna og fór með hin frægu orð, sem höfð voru eftir heilögum Frans frá Assisi: „Where there is discord, may we bring harmony. Where there is error, may we bring truth. Where there is doubt, may we bring faith. And where there is despair, may we bring hope.“ (Í íslenskri þýðingu Sr. Sigurjóns Guðjónssonar: „…að ég megi flytja samhug þangað sem sundrung er, að ég megi flytja sannleika þangað sem villa er, að ég megi flytja trú þangað sem efi er, að ég megi flytja von þangað sem örvænting er…“).
Þessi orð eru líkast til þau þekktustu sem forsætisráðherra Bretlands hefur látið falla á þeirri sögulegu stund þegar hann stígur inn í Downingstræti 10 í fyrsta sinn. Sumum þótti Thatcher setja markið hátt með því að vitna til þessarar frægu bænar við upphaf ferils síns. Leikskáldið Ronnie Millar, sem var ræðuskrifari Thatcher í kosningabaráttunni, átti hugmyndina. Honum þótti bænin viðeigandi þótt hún hefði öðlast frægð sem túlkun á tilfinningum fólks í heimstyrjöldunum. Thatcher tók við stjórnartaumum Bretlands eftir óánægjuveturinn mikla 1978-1979. Verkamannaflokkurinn var rúinn trausti og hafði engin ráð við þeim þrengingum sem steðjuðu að. Breska þjóðin var klofin, óánægð og reið og því má segja að bæn um von, sameiningu og sannleika hafi átt við.
Trúin á einstaklinginn var alla tíð kjarninn í hugmyndafræði Margrétar Thatcher. Fyrir bresku þingkosningarnar árið 1997, þegar Tony Blair sigraði í fyrsta sinn, birti blaðið Newsweek forsíðumynd af Thatcher (sem löngu var hætt í stjórnmálum) undir fyrirsögninni: Hinn raunverulegi sigurvegari kosninganna. Ástæðan var auðvitað sú að Nýi verkamannaflokkurinn undir forystu Blair, tók meðvitaða ákvörðun um að snúa ekki af þeirri braut sem Thatcher hafði markað og hafði reynst Bretum svo vel. Einmitt þess vegna voru fjárlög Gordons Browns og Alistairs Darlings nú í apríl svo vond. Þá hvarf Verkamannaflokkurinn aftur til uppruna síns, með ofurskatta á háar tekjur og möguleika á þjóðnýtingu, eins og hann hafði jafnan á stefnuskrá sinni fyrir Thatcher tímann. Það kemur því ekki á óvart að Tony Blair skuli vera á móti þessum nýju fjárlögum.

New Labour tók upp stefnu Thatcher á flestum sviðum árið 1997.
Því Verkamannaflokkurinn átti ekki möguleika á sigri árið 1997 með gömlu sósíalistastefnuna. Það vissu þeir sem settu „Nýi“ framan við nafn flokksins. Það vildi enginn gamla Verkamannaflokkinn. Thatcher hafði haft tíma til að koma stefnu úr orðum í verk; minnka áhrif verkalýðsfélaga, lækka skatta og auka frjáls viðskipti, þannig að breska þjóðin fann muninn. Boris Johnson borgarstjóri Lundúna gerir þetta að umtalsefni í Telegraph í dag: „Áður en níundi áratugurinn var á enda hafði hún lækkað skatta og efnahagurinn blómstraði, og það var ekki nóg með að þjóðin hefði endurheimt eitthvað af sjálfstrausti sínu og stöðu meðal þjóðanna. Einstaklingarnir gátu nú ráðið örlögum sínum á nýjan hátt. Þeir voru ekki lengur upp á sveitarfélög komnir með húsnæði, heldur gátu keypt sér sitt eigið“. Rétt eins og Thatcher sagði sjálf þegar hún yfirgaf Downingstræti 10 í síðasta sinn: „Við yfirgefum nú Downingstræti í síðasta sinn eftir 11 og hálft yndislegt ár, og við erum mjög glöð með að við skiljum við Bretland í miklu, miklu betra ástandi en þegar við komum hingað fyrir ellefu og hálfu ári.“ Fáir andmæltu þessu mati hennar þá og enn færri gera það nú, 30 árum síðar.