Ingibjörg og Guðlaugur
Það er hreint með ólíkindum hvernig umfjöllun um “hótanir ráðherra” breyttist þegar í ljós kom að ráðherrann sem hótaði var ekki Guðlaugur Þór Þórðarson, heldur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Ráðherrann sem sagði í Borgarnesi: „Ertu í liði forsætisráðherrans eða ekki – þarna er efinn og hann verður ekki upprættur nema hinum pólitísku afskiptum linni og hinar almennu gegnsæju leikreglur lýðræðisins taki við. Þetta er verkefni Samfylkingarinnar.“
Samfylkingin virðist ekki taka þetta verkefni alvarlegar en svo, að formaður hennar varar ræðumann á lýðræðislegum borgarafundi við afleiðingunum, ef ræðan verður formanninum ekki að skapi. Eru það hinar „almennu gegnsæju leikreglur lýðræðisins“?
Og fjölmiðlarnir sem hrukku af hjörunum ef það fréttist að Davíð Oddsson hefði sem forsætisráðherra talað við embættismenn í síma, telja enga frétt í því sem kallað var „hótun“ þegar Guðlaugur Þór lá undir grun.