Ný forysta Framsóknar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er öndvegispiltur eins og ég kynntist þegar við unnum saman fyrir nokkrum árum. Ég óska honum til hamingju með kjörið. Það má einnig segja um Höskuld Þórhallsson sem varð annar. Þessir tveir menn boða nýja tíma í Framsóknarflokknum og mynda áhugaverða forystu.
Uppgjörið við Framsóknarflokk REI málsins, Framsóknarflokk Kaupþings-Búnaðarbanka, Framsóknarflokk Finns Ingólfssonar, Ólafs Ólafssonar og Pálma í Fons er eins afgerandi og það gæti frekast orðið. Páll Magnússon, sem er ágætur maður og skemmtilegur, fær vonda útreið sem ekki skrifast á hann heldur þann Framsóknarflokk sem hafnað var á þinginu og Páll hefur verið talinn tengjast. Fráfarandi formaður réri öllum árum að kjöri Páls, og útkoma hans segir því mikla sögu.
Ný forysta Framsóknar byrjar líka vel. Sigmundur Davíð hefur tekið óvænta forystu í Evrópumálum. Hann er óhræddur við ESB, en sogast ekki að jakkafötunum og forræðishyggjunni í Brussel á sama hátt Samfylkingarfólk.
Margir bíða vitaskuld eftir landsfundi okkar Sjálfstæðismanna, því eftir umfangsmikla vinnu undanfarinna vikna munum við skila hugmyndum okkar um Evrópumál á þeim fundi. Ég held að Sjálfstæðismenn muni átta sig á því fyrir fundinn að brýnni verkefni bíða úrlausnar núna, en einmitt framtíðarstaða okkar gagnvart ESB. Þess vegna finnst mér fremur líklegt að vinalega verði talað um Evrópusambandið og ekkert verði útilokað fyrir framtíðina, en það þjóni ekki hagsmunum þjóðarinnar að ganga í sambandið núna. Þar af leiðandi sé einnig óþarfi að sækja um.
Hallærislegar hótanir Samfylkingarinnar um stjórnarslit ef við viljum ekki ganga í ESB, verða ennþá hallærislegri þegar þessi niðurstaða liggur fyrir. Eða skyldi Samfylkingin vilja slíta stjórnarsamstarfinu vegna afstöðunnar til ESB og boða til kosninga? Samfylkingin hlyti þá að gera aðild að ESB að forsendu fyrir ríkisstjórnarsamstarfi. Með hverjum?