RSS .92| RSS 2.0| ATOM 0.3
  • Aðalsíða
  •  

    Hvaða Samfylking?

    Samfylkingunni er sama um allt nema sjálfa sig. Þetta hefur komið ítrekað í ljós á undanförnum dögum. Völdin hafa verið tekin af Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og flokkurinn er margklofinn. Ingibjörg Sólrún sjálf virðist ekki einu sinni mjög heilsteypt í sínum yfirlýsingum.

    Í nóvember sagði formaður Samfylkingarinnar að það að halda kosningar á þessu ári væri „eins og að halda aðalfund í slysavarnafélaginu á meðan björgunaraðgerðin stæði yfir,“ og sagðist ósammála þeim Björgvini G. Sigurðssyni og Þórunni Sveinbjörnsdóttur sem höfðu hvatt til kosninga.

    Mánuði síðar var önnur Ingibjörg Sólrún til svara í vikulokunum á Ríkisútvarpinu. Þá taldi hún að kosningar yrðu nauðsynlegar EF Sjálfstæðisflokkurinn myndi ekki álykta eftir hennar höfði á landsfundinum í janúar. Enda gæti Samfylkingin ekki unnið með flokki með „gerólíka stefnu í peningamálum“. Í orðunum lá að ef við sjálfstæðismenn vildum sækja um aðild að Evrópusambandinu, þyrfti alls ekki að kjósa.

    Við bæði þessi tækifæri tók Ingibjörg Sólrún sérstaklega fram að ríkisstjórnin stæði sterk, björgunaraðgerðir væru í fullum gangi, og mikilvægt væri að ekki kæmi rof í þær.

    Fyrr í þessum mánuði komst Samfylkingarfélagið í Reykjavík að þeirri niðurstöðu, á milli þess sem það klappaði fyrir mótmælendum sem kveiktu bál og ruddust inn á fundinn, að slíta ætti stjórnarsamstarfinu strax og boða þegar í stað til kosninga. Leiðsögn Ingibjargar Sólrúnar í þessum málum var kastað algerlega fyrir róða. Hennar sýn um björgunaraðgerðirnar og aðalfund slysavarnarfélagsins var klöppuð út af borðinu. Mótmælendur og ofbeldismenn fyrir utan fundinn höfðu meira vægi en formaður flokksins.

    Í dag og í gær hefur það svo gerst að Ingibjörg Sólrún hefur gert um það skýlausa kröfu að Samfylkingin fái forsætisráðuneytið. Engin málefnaleg sjónarmið liggja þar að baki. Engin rök hafa komið fram um að Geir Haarde hafi staðið sig illa í stóli forsætisráðherra. Þvert á móti hefur Ingibjörg Sólrún lýst yfir trausti sínu á Geir. Hugmyndin um að flokkarnir ákveði skyndilega núna að færa forsætisráðuneytið á milli flokkanna er að sjálfsögðu fráleit, og Ingibjörg Sólrún vissi það vel. Hún var knúin til að setja hana fram.

    Málefnalega eiga Vinstri grænir og Samfylkingin litla samleið um þessar mundir. Eða telur Samfylkingin að Vinstri grænir fylgi sömu stefnu og hún í peningamálum? Vilja Vinstri grænir ganga í Evrópusambandið og taka upp Evruna?

    Er Samfylkingin sammála þeirri stefnu Vinstri grænna að ekki beri að gera upp ICESAVE skuldirnar? Veit Samfylkingin hvaða áhrif það mun hafa á samskipti okkar við Evrópusambandið?

    Er Samfylkingin sammála þeirri stefnu Vinstri grænna að best sé að semja okkur útúr láni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þegar í stað? Eða er þetta ennþá að mati þingmanna Samfylkingarinnar „eitthvað það óábyrgasta sem ég hef heyrt frá stjórnmálamanni“, eins og einn þeirra komst að orði fyrir nokkrum dögum?

    Eru einhver mikilvægari mál en gjaldmiðilsmál, IceSave og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn núna? Um hvað yrði minnihlutastjórn þessara flokka mynduð?

    Í miðjum björgunarleiðangrinum hefur Samfylkingin nú sóað nokkrum dögum í pólitíska kreppu í stað þess að reyna að vinna okkur útúr efnahagskreppunni. Rót þessarar pólitísku kreppu eru innanflokksátök Samfylkingarinnar, sem er margir flokkar. Ingibjörg Sólrún hefur lent undir í átökum innan flokksins. Hún vildi halda stjórnarsamstarfinu áfram og bjarga því sem bjargað verður, en mótmælendur innan og utan Samfylkingarinnar reyndust hafa meira vægi en formaðurinn.

    Comments are closed.