RSS .92| RSS 2.0| ATOM 0.3
  • Aðalsíða
  •  

    Majónesið þegar orðið gult

    Það er rétt að óska nýrri ríkisstjórn Íslands velfarnaðar. Við þurfum á því að halda að hún standi sig vel.

    Vandræðagangurinn í kringum ríkisstjórnarmyndunina gaf þó tóninn um að ekki yrðu verkin merkileg. Ljóst er að einhverskonar yfir-ríkisstjórn mun hittast vikulega og ráða ráðum sínum. Þaðan munu ráðherrarnir fá línuna um hvert skuli stefna. Það er sérkennilegt.

    Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins er sá eini sem hefur komið fram af festu í þessum málum. Athyglisverð var yfirlýsing hans um að þessi ríkisstjórn væri ekki óskastjórn hans. Að auki vissu allir hvað hann átti við þegar hann lýsti klækjastjórnmálum Samfylkingarinnar. Við sjálfstæðismenn fengum svo sannarlega að kynnast þeim á síðustu metrum stjórnarinnar sem innsigluð var með kossi. Kyssikonan ógurlega reyndist svo ekki hafa innistæðu fyrir kossinum.

    Miklar efasemdir eru um hlutverk forsetans í þessari ríkisstjórnarmyndun. Hvers vegna lét forsetinn ekki reyna á það hvort möguleiki væri á meirihlutastjórn? Okkar stjórnskipunarhefðir gera ráð fyrir því að hér starfi ríkisstjórn sem hefur meirihluta Alþingis á bak við sig. Um það snýst þingræðið. Er einhver sérstök ástæða núna til að draga úr áhrifum þingsins með því að mynda minnihlutastjórn, en tala á sama tíma um að halda þurfi stjórnlagaþing til að auka völd þingsins?

    Þá hefur Samfylkingin komist upp með að svara ekki grundvallarspurningunni: „Af hverju slituð þið stjórnarsamstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn?“ Það hefur komið fram að enginn málefnalegur ágreiningur var á milli flokkanna. Augljóst er líka af orðum Geirs H. Haarde að hann telur að Ingibjörg Sólrún hafi viljað halda stjórnarsamstarfinu áfram, en uppreisn hafi verið gerð í flokknum hennar. Uppreisnarliðið (klappliðið, sem klappaði fyrir mótmælendunum í Þjóðleikhússkjallaranum) hafði hinsvegar ekki merkilegra erindi en það, að þóknast háværustu mótmælendunum og reka Davíð Oddsson. Að minnsta kosti er krafan „kosningar strax“ ekki lengur uppi á borðinu.

    Enda kemur það í ljós þegar þjóðarpúls Gallup er skoðaður að fylgi VG hrynur um leið og þeir stukku úr hópi mótmælenda og inn í hlýtt stjórnarráðið. Á sama tíma fer fylgi Sjálfstæðisflokksins upp. Fólk sér í gegnum valdafíkn Samfylkingarinnar, sem fyrst klappaði upp útrásarvíkinga en síðan grjótkastandi mótmælendur.

    Veislan sem þessi ríkisstjórn býður til verður því miður dapurleg. Majónesið var þegar orðið gult þegar gestirnir mættu.

    Comments are closed.