RSS .92| RSS 2.0| ATOM 0.3
  • Aðalsíða
  •  

    Stærð bankanna

    Skuldir ríkisins er það sem helst mun hamla viðreisn Íslands á næstu árum. Ef lánin frá alþjóðlegum stofnunum verða jafn há og talað hefur verið um, og Icesave reikningar verða borgaðir upp í topp skiptir engu máli hversu snjöll við verðum á næstu árum; okkur verður haldið niðri af þessum skuldum. Mikilvægasta verkefni ráðamanna er að reyna að lágmarka þessar skuldir eins og kostur er. Nýr fjármálaráðherra virðist skilja þetta og lengi vel vildi hann hvorki borga Icesave reikningana né þiggja lánið frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Það virðist að vísu hafa breyst þegar hann eygði ráðherrasæti, en vonin er þó til staðar að hann átti sig á því að með skuldaklafann á okkur, verður erfitt að rísa upp.

    Í því samhengi er athyglisvert að skoða stærð bankanna. Nú ætlar ríkið að setja 385 milljarða, í formi eigin fjár, inn í bankakerfið. Það eru gríðarlegar fjárhæðir, sem verða auðvitað teknar að láni, enda fjarri því að við eigum fyrir þessu. Við skattgreiðendur munum borga þetta lán næstu áratugina. En er ekki hægt að lækka þessa upphæð? Hvers vegna er ekki farið með bankana eins og hver önnur gjaldþrota fyrirtæki, og kröfuhafar eignast hluti í þeim? Þetta kann að vera misflókið eftir bönkum, en hlýtur þó að verða skoðað alvarlega því með þeim hætti gætum við minnkað verulega framlög okkar til bankanna.

    Önnur leið er einfaldlega að hafa bankana ekki jafn risastóra og nú er stefnt að. 385 milljarðar inn í bankakerfið þykir flestum sem ég hef talað við í bönkunum stjarnfræðilega há tala. Til samanburðar má nefna að fyrir 10 árum var eigið fé íslensku bankanna rúmir 37 milljarðar, og dugðu bankarnir okkur þó ágætlega. Árið 2004 var talan komin upp í 238 milljarða eftir ótrúlegan vöxt. En í miðju efnahagshruni, þegar við þurfum að leita allra leiða til að draga saman útgjöld og minnka skuldir, ætlum við að setja 385 milljarða inn í bankakerfið. Skuldir sem munu leggjast ofaná aðra skuldabagga sem þjóðin tekur á herðarnar. Er ekki hægt að lækka þessa upphæð? Er ekki eðlilegt að við sem munum borga, höfum eitthvað um þetta að segja?

    Comments are closed.