RSS .92| RSS 2.0| ATOM 0.3
  • Aðalsíða
  •  

    Allir nema einn

    Það er óneitanlega athyglisvert að sá flokkur sem mest kallaði eftir uppstokkun og endurnýjun í íslenskum stjórnmálum, skuli ætla að bjóða fram alla ráðherrana úr ríkisstjórninni sem sat þegar allt hrundi, nema einn. Og þessi eini ráðherra sem ekki ætlar að bjóða sig fram, hættir við af heilsufarsástæðum, en hyggst snúa aftur í stjórnmálin við fyrsta tækifæri.

    Að sjálfsögðu vona allir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir nái fullri heilsu sem fyrst, en er ekki eitthvað skrýtið að enginn ráðherra Samfylkingarinnar telji að þeir þurfi að axla ábygð? Þetta fólk heimtaði afsagnir allra embættismanna og hótaði brottrekstri ella. Svo hávær var krafan um endurnýjun og öxlun á ábyrgð, að Alþingi var óstarfhæft í tvær vikur á meðan lögum um pólitískan brottrekstur Davíðs Oddssonar var þröngvað í gegn. Því allir sem einhverja ábyrgð báru, urðu að víkja að mati Samfylkingarinnar.

    En ekki ráðherrar í ríkisstjórn landsins? Ráðherrar eru yfirmenn seðlabankastjóra, yfirmenn fjármálaeftirlits og hjá ráðherrunum liggja þeir taumar sem allir eru sammála um að hefði átt að grípa í.

    Samfylkingin verður að svara því af hverju ráðherrar hennar eru undanskildir ábyrgð. Fólkið sem mest öskraði á Austurvelli verður sífellt hlægilegra eftir því sem það þegir lengur yfir meira-af-því-sama stefnu Samfylkingarinnar.

    Comments are closed.