Atktívismi í Edinborg
Hverfið sem við fjölskyldan búum í í Edinborg var einu sinni sérstakt bæjarfélag og þrátt fyrir að hafa sameinast borginni fyrir löngu, hefur það haldið sínum bæjarbrag á mjög skemmtilegan hátt. Eitt af því sem fylgir slíkum smábæjum er svokölluð High Street, eða aðalgata. Þar er slátrari, bakarí, rakari, nokkrir pöbbar, bókabúðir og svo framvegis. Þar hefur líka verið um árabil verslunin Woolworths, sem Baugur átti. Við hrunið í haust lokaði Woolworths hér eins og annars staðar og húsnæðið hefur staðið autt síðan.
Nú er hinsvegar komin upp athyglisverð deila, sem ég hef haft gaman af að fylgjast með. Stórverslunin Sainsbury’s hefur fengi leyfi til að opna þarna verslun. Fréttir af því birtust í fjölmiðlum fyrir nokkrum vikum, og síðan þá hafa nokkur þúsund manns (var komið vel yfir 2000 síðast þegar ég vissi, sennilega eitthvað meira núna) skrifað undir bænaskjal um að verslunin opni ekki. Ástæðan er sú, að reynslan frá öðrum aðalgötum sýnir svo ekki verður um villst, að þegar stórmarkaður opnar í götum sem þessari munu litlu búðirnar sem hafa verið þarna í margar kynslóðir, fara á hausinn.
Slátrarinn getur ekki keppt við stórverslunina, frekar en bakaríið, bókabúðin eða blómasalinn. Þetta vita kaupmennirnir sjálfir og þetta vita viðskiptavinirnir líka. Dæmin um þessa þróun er að finna um gervalt Bretland.
Ef Sainsbury’s opnar stórmarkaðinn sinn hér, mun fólk (líka þeir sem mótmæla) versla við markaðinn. Hann verður ódýrari, hefur opið lengur og meira vöruúrval en litlu verslanirnar. Auk þess tekur minni tíma að versla; allt er á einum stað, einsog eitthvert vígorðið hljómaði heima. En niðurstaðan verður verri gata, fábreyttara mannlíf, ópersónulegri þjónusta og að lokum hugsanlega leiðinlegra hverfi. Sem yfir lengri tíma gæti skilað sér í minna spennandi hverfi með lægra húsnæðisverði og lakari lífsgæðum. Því hverfið er núna mjög vinsælt, íbúðaverð hátt og svæðið annálað fyrir einstaka stemningu og mannlíf. Fyrir þetta borgar fólk hærra íbúðaverð, hærra verð fyrir persónulega og góða þjónustu hjá pylsugerðarmanninum og þarf kannski að taka lífinu aðeins rólegar og skipulegar, því það er ekki hægt að hlaupa í stórmarkaðinn allan sólarhringinn.
Ég held að ekki séu komnar lyktir í þetta mál. Að minnsta kosti var ekkert sem benti til að Sainsbury’s væri byrjað að koma sér fyrir síðast þegar ég gáði. Mér finnst áhugavert að fylgjast með þessu máli og er mjög ánægður að með íbúarnir skuli láta sig þetta mál varða. Því það er kreppa í Skotlandi rétt eins og á Íslandi og fólk væri alveg til að hafa brauðið aðeins ódýrara. En þegar allt kemur til alls skiptir stóra samhengið sennilega meira máli. Því eins og viðskiptavinir Melabúðarinnar segja gjarnan hver við annan: Ef Melabúðin færi, færi hjartað úr hverfinu. Og fyrir þetta hjarta er fólk venjulega tilbúið til að borga nokkrar krónur á mánuði. Jafnvel í kreppu.