Úrslitin og ESB
Nú keppast allir kratar í fjölmiðlastétt við að túlka niðurstöðu kosninganna þannig að þjóðin heimti að gengið verði í ESB. Það finnst mér einkennileg túlkun.
Samylkingin fékk meira fylgi í kosningunum árið 2003, þá líka með aðild að ESB á stefnuskrá sinni. Var það ákall þjóðarinnar um inngönguí ESB? Halldór Ásgrímsson var alltaf volgur fyrir því, eins og allir vissu og samanlagt voru þessir flokkar með tæplega 50% í þeim kosningum. Það var hinsvegar rangt þá, rétt eins og það er rangt nú, að túlka niðurstöðuna sem ákall um ESB. Flokkarnir eru með mörg mál á stefnuskránni og fólk kýs flokkana af mismunandi ástæðum. Framsókn hefur margítrekað á síðustu vikum að aðild að ESB sé hreint ekki forgangsmál við þessar aðstæður. Það segja VG og Sjálfstæðisflokkur líka. Þessir flokkar þrír eru með 39 þingmenn. Má ekki alveg eins túlka niðurstöðuna þannig að kjósendur vilji ekki ganga í ESB?
Það væri að minnsta kosti í takt við niðurstöður kannana sem Samtök iðnaðarins hafa látið gera árum saman. Andstæðingar aðildar hafa aldrei verið fleiri en einmitt nú í febrúar og mars, eða rúmlega 45% aðspurðra. Að sama skapi eru stuðningsmenn aðildar innan við 40% og hafa aðeins einu sinni verið færri, sumarið 2002. Þetta sést í fleiri könnunum.
Með öðrum orðum: Minnihluti þjóðarinnar vill sækja um aðild að ESB, eini flokkurinn sem hefur aðild að sambandinu á stefnuskránni fær innan við 30%, en samt stendur það upp úr hverjum manni að í gærkvöldi hafi þjóðin sammþykkt að ganga í ESB. Og það á að sækja um eftir nokkra daga. Eru menn ekki full brattir í því að túlka þjóðfélagið útfrá þeim þrönga hring fjölmiðlamanna og hátekjumanna sem þeir umgangast?