RSS .92| RSS 2.0| ATOM 0.3
  • Aðalsíða
  •  

    Gísli skessa

    Gísli Einarsson fréttamaður átti sennilega bestu stjórnmálagreiningu kvöldsins á kosninganótt. Hann þurfti reyndar bara að segja sannleikann, en jafnvel það reynist sumum ofraun.

    Gísli (sem jafnan var kallaður Gísli skessa, á meðan hann var ritstjóri blaðsins Skessuhorns) var staddur á Kaffi Reykjavík á kosningavöku Vinstri grænna. Þrátt fyrir góðan árangur VG gátu heiðarlegir stjórnmálamenn hreyfingarinnar ekki leynt vonbrigðum sínum með að vera ekki nær því sem kannanir höfðu spáð. Andlitin töluðu þar skýrar en orðin.

    Gísli sagði hinsvegar frá því að gestir kosningavökunnar hefðu orðið fyrir nokkrum vonbrigðum með tölur VG, en hinsvegar hefði brotist út mikill fögnuður með gengi Sjálfstæðisflokksins!

    Þarna finnst mér VG því miður vera farin að líkjast samstarfsflokki sínum Samfylkingunni full mikið. Sá flokkur hefur frá upphafi haft þráhyggjukenndan áhuga á Sjálfstæðsflokknum og átt erfitt með að skilgreina sig, nema útfrá honum. Samfylkingin hefur apað eftir Sjálfstæðisflokknum ýmiskonar skipulag á innra starfi og lét t.d. ekki nægja að ljósrita skipulag Landsfundar hans, heldur ákvað að halda hann sömu helgi og Sjálfstæðisflokkurinn. Allir muna eftir „tveggja turna“ talinu hjá Samfylkingunni og ýmsir innan Samfylkingarinnar hafa ítrekað reynt að lýsa fjórflokkinn dauðann. Þetta séu bara turnarnir tveir og svo smælkið. Af þessum sökum er ég viss um að fagnaðarlætin yfir gengi Sjálfstæðisflokksins hafa verið enn meiri á Grand hótel, þótt ekki hafi verið sagt frá þeim.

    VG hefur borið gæfu til að skilgreina sig út frá eigin málum hingað til. Það er sorglegt fyrir alla flokka að vera svo uppteknir af Sjálfstæðisflokknum að öll þeirra tilvera fari að snúast um hann.

    Comments are closed.