RSS .92| RSS 2.0| ATOM 0.3
  • Aðalsíða
  •  

    Með eða á móti ESB

    Mér finnst mjög einkennilegt að stjórnmálamenn og stjórnmálaflokkar skuli ekki geta tekið ákvörðun um það hvort þeir eru með eða á móti inngöngu í Evrópusambandið. ESB hefur um árabil verið meðal stærstu viðfangsefna stjórnmála í Evrópu og þeir stjórnmálamenn sem hafa ekki myndað sér skoðun á því hvort Ísland ætti að vera í sambandinu eða ekki, hafa ekki verið að fylgjast með.

    Kostir og gallar Evrópusambandsins liggja ágætlega fyrir. Fjöldi annarra þjóða hefur gengið í sambandið á undanförnum árum og margir helstu ráðamanna þess hafa komið til Íslands og talað skýrt um kosti þess og galla fyrir okkur að gerast aðilar.

    Aðeins einn flokkur hefur verið með inngöngu í ESB sem stefnumál; Samfylkingin. Sannfæringin hefur þó ekki verið sterkari en svo að kosningar eftir kosningar hefur hún ekki þorað að gera ESB að kosningamáli, en kvartað svo undan því að Sjálfstæðisflokkurinn skuli ekki hafa „sett ESB á dagskrá“. Þessa dagana ætlar Samfylkingin hinsvegar að nýta sér ófremdarástand í efnahagsmálum Íslands til að afla ESB fylgis. Það er ódýr tækifærismenska.

    Sjálfur er ég þeirrar skoðunar að við getum ekki afsalað okkur yfirráðum yfir mikilvægustu auðlindum landsins og innganga í ESB komi því ekki til greina að svo stöddu. Áfram er auðvitað lykilatriði að við náum góðum samningum við sambandið og full ástæða er til að ætla að svo verði.

    Aðildarumsókn til að sjá hvað við fengjum, er óþarfi ef menn eru þessarar skoðunar.

    Hitt er annað mál að samvinna Evrópuþjóða er nauðsynleg og ESB er að mörgu leyti afbragðs fyrirbæri. Ísland á að sjálfsögðu heima í Evrópu og við þurfum að eiga mikil og góð samskipti við einstakar þjóðir álfunnar, rétt eins og ESB.

    Comments are closed.